Frístundastyrkur Reykjanesbæjar
Frístundastyrkur var áður nefndur hvatagreiðslur hjá Reykjanesbæ.
Frístundastyrkur er árlegur styrkur sem Reykjanesbær veitir foreldrum og forsjáraðilum barna til að styðja við þátttöku þeirra í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og listgreinastarfi.
Styrkurinn er ekki greiddur út í reiðufé, heldur dregst hann frá æfinga- eða námskeiðsgjöldum þegar barn er skráð í viðurkennt starf í gegnum rafrænt skráningarkerfi.
Hverjir eiga rétt á frístundastyrk?
- Börn á aldrinum 4–18 ára með lögheimili í Reykjanesbæ
- Íbúar 67 ára og eldri (styrkurinn gildir frá því almanaksári sem viðkomandi verður 67 ára)
Hver er upphæð frístundastyrks?
- Börn 4–18 ára: kr. 50.000 á ári
- 67 ára og eldri: kr. 45.000 á ári
Í hvað má nota frístundastyrk?
Frístundastyrk má nota til niðurgreiðslu á:
- Íþróttastarfi
- Tómstundastarfi
- List- og menningarstarfi
Skilyrði er að starfið sé skipulagt og í boði viðurkennds aðila.
Í hvað má ekki nota frístundastyrk?
- Frístundaheimili grunnskóla
- Starfsemi sem telst ekki viðurkennd samkvæmt reglum sveitarfélagsins
Hvernig er frístundastyrkur notaður?
- Skráning fer fram í rafrænu skráningar- og greiðslukerfi (t.d. Nóri, Sportabler o.fl.).
- Við skráningu er valið að nota frístundastyrk.
- Styrkurinn dregst frá gjöldum og greiddar eru eftirstöðvar ef við á.
Mikilvægt að hafa í huga
- Frístundastyrk sem búið er að ráðstafa í gjöld er ekki hægt að endurgreiða eða bakfæra.
- Hafi frístundastyrkur ekki verið nýttur að hluta eða að fullu falla eftirstöðvar niður um áramót.
Algengar spurningar
- Get ég notað frístundastyrk hjá fleiri en einu félagi?
Já, hægt er að skipta frístundastyrknum á milli fleiri en eins aðila, svo lengi sem heildarupphæð styrksins er ekki umfram árlegt hámark.
- Er hægt að endurgreiða frístundastyrk?
Nei. Frístundastyrk sem þegar hefur verið ráðstafað í æfinga- eða námskeiðsgjöld er ekki hægt að endurgreiða eða bakfæra.
- Hvað gerist ef frístundastyrkurinn er ekki notaður?
Hafi frístundastyrkur ekki verið nýttur að hluta eða að fullu fellur hann niður um áramót og færist ekki yfir á næsta ár.
- Hvert get ég leitað með spurningar?
Allar fyrirspurnir sem varða frístundastyrk skal senda á netfangið: fristundastyrkur@reykjanesbaer.is





