Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Á Fitjum í Ytri-Njarðvík hafa verið reist tvö fuglaskoðunarhús. Húsin eru ætluð til fuglaskoðunar og skapa aðstöðu til að fylgjast með fuglalífi á svæðinu.

Við hönnun húsanna var unnið í samstarfi arkitekta, líffræðings og fuglaljósmyndara við val á staðsetningu og stefnu þeirra. Markmiðið er að gera kleift að fylgjast með og mynda fjölbreytt fuglalíf sem heldur sig bæði á tjörnunum og í fjörunni á Fitjum.

Fuglaskoðunarhúsin eru jafnframt hluti af umhverfi Fitjanna og hafa áhrif á ásýnd svæðisins. Verkefnið hlaut styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða árið 2022.