Leitum að áhugaverðum söluaðilum og skemmtilegum dagskráratriðum
Undirbúningur fyrir Aðventugarðinn í Reykjanesbæ er hafinn og nú leitum við að fjölbreyttum söluaðilum, skapandi fólki og skemmtilegum dagskráratriðum til að skapa með okkur notalega og lifandi jólastemningu í garðinum á aðventunni.
Í ár verður Aðventugarðurinn opinn á nýjum tímum um helgar fram að jólum. Á laugardögum verður opið kl. 15 – 18 og á sunnudögum kl. 13 – 16. Með því viljum við nýta betur ólíka stemningu daganna – njóta þess þegar rökkrið færist yfir og jólaljósin taka við á laugardögum, en leggja sérstaka áherslu á fjölskyldur og yngri gesti á sunnudögum.
Jólaljós, eldstæði og ýmislegt góðgæti verða áfram hluti af stemningunni og markmiðið er að skapa notalegan samkomustað þar sem fólk getur notið dagskrárinnar, rölt á milli sölukofa og átt góða stund saman í aðdraganda jóla.
Ertu með eitthvað spennandi að bjóða?
Við leitum að fjölbreyttum vörum sem eiga vel heima á aðventunni – hönnun, handverki, listmunum, sælkeravörum, gjafavöru og öðru sem getur glatt gesti eða ratað í jólapakkann.
Hægt er að sækja um sölukofa fyrir eina eða fleiri heilar helgar eða staka daga. Við hvetjum bæði vana markaðssöluaðila og hönnuði, listafólk, framleiðendur og aðra með áhugaverðar vörur til að sækja um.
Þátttaka söluaðila verður gjaldfrjáls í ár. Takmarkaður fjöldi kofa er í boði og verður við úthlutun meðal annars horft til gæða, fjölbreytni og þess hvernig framboð söluaðila myndar skemmtilega heild.
Langar þig að vera hluti af dagskránni?
Við leitum einnig að tónlistarfólki, listafólki, félögum, hópum og öðrum sem hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til að skapa líf og jólastemningu í garðinum.
Við höfum áhuga á fjölbreyttum hugmyndum – tónlist, söng, leik, leikjum, dansi, persónum, litlum uppákomum og öðru sem getur glatt gesti og gert heimsóknina í Aðventugarðinn eftirminnilega.
Atriðin þurfa ekki að vera stór eða umfangsmikil. Stundum eru það einmitt litlu óvæntu augnablikin sem skapa bestu stemninguna.
Umsóknarfrestur er til og með 25. október.
Nánari upplýsingar um aðstöðu og fyrirkomulag má finna í umsóknunum.
Vertu með okkur og skapaðu jólastemninguna í Aðventugarðinum!
