
Umsóknarfrestur
Til og með 25. október 2026.
Haft verður samband við umsækjendur að loknum umsóknarfresti eftir að umsóknir hafa verið yfirfarnar.
Í Aðventugarðinum viljum við skapa notalega og lifandi jólastemningu þar sem gestir geta rölt á milli sölukofa, notið dagskrár og átt góða stund saman í aðdraganda jóla.
Við leitum að fjölbreyttum vörum sem eiga vel heima á aðventunni – hönnun, handverki, listmunum, sælkeravörum, gjafavöru og öðru sem getur glatt gesti eða ratað í jólapakkann.
Bæði vanir markaðssöluaðilar og hönnuðir, listafólk, framleiðendur og aðrir með áhugaverðar vörur eru hvattir til að sækja um.
Opnunartímar Aðventugarðsins
- Laugardagar kl. 15-18
- Sunnudagar kl. 13-16
Þátttaka og úthlutun
Þátttaka söluaðila er gjaldfrjáls. Hægt er að sækja um sölukofa fyrir eina eða fleiri heilar helgar eða staka daga.
Þegar söluaðili hefur samþykkt úthlutun telst bókun hans staðfest. Afbóki söluaðili staðfesta bókun er innheimt 5.000 kr. afbókunargjald fyrir hvern stakan dag og 10.000 kr. fyrir heila helgi.
Takmarkaður fjöldi kofa er í boði. Við úthlutun verður meðal annars horft til gæða, fjölbreytni og þess hvernig framboð söluaðila myndar skemmtilega heild.
Söluaðili skuldbindur sig til að mæta þá daga sem honum er úthlutað og hafa opið allan auglýstan opnunartíma. Kofa skal skilað í sama ástandi og tekið var við honum. Söluaðili ber byrgð á að starfsemi hans og sala uppfylli gildandi lög og reglur.
Spurt og svarað
Stærð: 4–5 m²
Rafmagn, hiti og einföld jólaskreyting að utan fylgir
Gengið er út frá því að tveir söluaðilar geti deilt kofa. Við úthlutun er þó tekið mið af vöruframboði og aðstæðum hverju sinni.
Söluaðilar sjá sjálfir um að stilla upp vörum og skapa fallega og jólalega umgjörð í kofanum
421-6700
adventugardur@reykjanesbaer.is