Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Umsókn um viðburðahald, uppákomur eða dagskrá í Aðventugarðinum

Umsóknarfrestur

Til og með 25. október 2026.

Haft verður samband við umsækjendur að loknum umsóknarfresti eftir að umsóknir hafa verið yfirfarnar.

Í Aðventugarðinum viljum við skapa notalega og lifandi jólastemningu þar sem gestir geta notið fjölbreyttrar dagskrár og átt góða stund saman í aðdraganda jóla.

Við leitum að fjölbreyttum atriðum, uppákomum og viðburðum sem eiga vel heima í Aðventugarðinum – til dæmis tónlist, söng, dansi, sviðslistum, barnaskemmtun og öðrum atriðum sem geta lífgað upp á garðinn og glatt gesti.

Listafólk, félagasamtök, skólar, hópar og aðrir sem hafa áhuga á að taka þátt í dagskrá Aðventugarðsins eru hvattir til að senda inn umsókn.

Opnunartímar Aðventugarðsins

  • Laugardagar kl. 15–18
  • Sunnudagar kl. 13–16

Dagskrá og val

Í umsókn skal koma fram lýsing á atriðinu eða viðburðinum, áætluð lengd og hvaða dagar henta umsækjanda.

Við val og niðurröðun dagskrár verður meðal annars horft til fjölbreytni, þess hvernig atriðið hentar Aðventugarðinum og hvernig dagskráin myndar skemmtilega heild.

Umsókn tryggir ekki þátttöku eða ákveðna tímasetningu. Haft verður samband við þá sem fá úthlutað plássi í dagskrá og nánari útfærsla og tímasetning ákveðin í samráði við viðkomandi.

Spurt og svarað

Umsókn um viðburðahald, uppákomur eða dagskrá í Aðventugarðinum - Reykjanesbær