Nefndir og ráð Reykjanesbæjar gegna mikilvægu hlutverki í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Þau fjalla um málefni á sínum starfssviðum, móta tillögur og áherslur og undirbúa mál til ákvörðunar eftir því sem við á. Starf þeirra byggir á samþykktum Reykjanesbæjar og þeim verkefnum og heimildum sem þeim hafa verið falin.
Í nefndum og ráðum sitja kjörnir fulltrúar og eftir atvikum aðrir fulltrúar sem taka þátt í umfjöllun um einstök mál. Fundir eru haldnir reglulega og fundargerðir veita innsýn í þau mál sem tekin eru fyrir, umræður og ákvarðanir.
Hér finnur þú yfirlit yfir nefndir og ráð Reykjanesbæjar. Á síðu hverrar nefndar eða ráðs má finna nánari upplýsingar um starfsemi þess.