Skipulagsráð fer með skipulagsmál, umferðarmál, umhverfis- og náttúruverndarmál auk málefna skrúðgarðs- og fegrunarnefndar og gerir tillögur til bæjarstjórnar um nöfn á götum og hverfum auk lóðaúthlutana. Skipulagsráð kallar til opinna íbúafunda þegar á dagskrá eru ákvarðanir um skipulagsmál eða framkvæmdir sem krefjast þess að allur almenningur eigi þar jafnan aðgang.
Erindum til nefndarinnar skal skilað til skipulagsfulltrúa með a.m.k. viku fyrirvara.
Afgreiðslur ráðsins má finna í fundargerðum sem eru aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins. Allar fundargerðir fara til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Starfsmaður ráðsins: Gunnar Kr. Ottósson
Fulltrúar í skipulagsráði
Gunnar Felix Rúnarsson (D) - formaður
Aðalgeir Jónsson (M)
Hjörtur Magnús Guðbjartsson (S)
Jón Már Sverrisson (D)
Róbert Jóhann Guðmundsson (B)