Velferðarráð fer með stjórnun og framkvæmd velferðarmála í Reykjanesbæ samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Ráðið fer einnig með öldrunarmál, verkefni áfengisvarnarnefndar, jafnréttisnefndar, framtalsnefndar og húsnæðisnefndar.
Markmið velferðarráðs og starfsfólks velferðarmála er að styðja fólk til sjálfsbjargar með ráðgjöf, upplýsingum, endurhæfingu og nauðsynlegri fjárhagsaðstoð.
Ráðið fundar að jafnaði annan miðvikudag í mánuði kl. 14:00.
Fulltrúar
- Ólöf Steinunn Lárusdóttir (D), formaður
- Aðalheiður Hilmarsdóttir (S)
- Alma Guðnadóttir (D)
- Halla Karen Guðjónsdóttir (B)
- Hermann Borgar Jakobsson (D)