Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Á Gagnatorgi má finna tölulegar upplýsingar um starfsemi og þróun í Reykjanesbæ. Þar eru meðal annars birtar upplýsingar um:

  • Íbúaþróun og íbúafjölda eftir hverfum
  • Atvinnuleysi
  • Fjölda gesta
  • Rekstrartölur málaflokka
  • Fjármálaupplýsingar sveitarfélagsins

Upplýsingarnar eru settar fram á myndrænan hátt í gröfum, línu-, súlu- og skífuritum og eru uppfærðar reglulega.

Markmið

Gagnatorgið er unnið af Hagdeild Reykjanesbæjar. Markmiðið er að auka gagnsæi í stjórnsýslu og gera upplýsingar úr rekstri sveitarfélagsins aðgengilegar fyrir íbúa og aðra áhugasama.