◉ Skólavegur 54, 230 Reykjanesbær
@ asparlaut@asparlaut.is
✆ 420 3160
◴ Kl. 07:45 – 16:15
Um leikskólann
Heilsuleikskólinn Asparlaut hóf starfsemi 24. mars 2025. Áður hafði leikskólinn starfað undir nafninu Garðasel í rúm 50 ár frá árinu 1974. Asparlaut er sex deilda skóli fyrir 120 börn með sveigjanlegan vistunartíma, frá 4 tímum og upp í rúmlega 8 tíma vistun. Deildirnar heita Sól, Sunna, Tungl, Máni, Stjarna og Geisli. Tvær deildir fyrir sig deila sameiginlegu svæði fyrir framan deildirnar þar sem meðal annars er sameiginlegt listsköpunarsvæði, bókasafn og leiksvæði.

Hugmyndafræði
Asparlaut er heilsuleikskóli og starfar samkvæmt heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Markmiðið er að efla heilbrigða lífshætti frá unga aldri og stuðla að vellíðan barna í leik og starfi.
Við leggjum áherslu á alhliða þroska barna með leiknum að leiðarljósi. Í starfinu er sérstök áhersla á hreyfingu, næringu, skapandi starf, læsi í víðum skilningi og stærðfræði. Markmið heilsuleikskóla er að auka gleði og vellíðan barna með því að samþætta hreyfingu, næringu og listsköpun í daglegt starf.
Einkunnarorð Asparlautar eru
HREYFING –NÆRING – VIRÐING – SKAPANDI STARF
