◉ Heiðarbraut 27, Reykjanesbær 230
@ heidarsel@heidarsel.is
✆ 420 3130
◴ 07:45 – 16:15
Um leikskólann
Heilsuleikskólinn Heiðarsel tók til starfa 8. október 1990 og er fjögurra deilda leikskóli í Reykjanesbæ.
Í leikskólanum geta dvalið allt að 94 börn á aldrinum tveggja til sex ára. Starfsemin byggir á lögum um leikskóla og Aðalnámskrá leikskóla.
Frá árinu 2004 hefur Heiðarsel starfað samkvæmt Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Markmið skólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á leik, hreyfingu, næringu og listsköpun.
Aðrar áherslur í starfinu eru læsi, stærðfræði og tónlist.
Frá árinu 2012 hefur Heiðarsel einnig unnið samkvæmt hugmyndafræðinni Uppeldi til ábyrgðar. Markmiðið er að kenna börnum og ungmennum sjálfsstjórn og sjálfsaga, taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum og læra af mistökum í samskiptum.
Hugmyndafræðin styður við jákvæð samskipti og byggir á sameiginlegum lífsgildum sem höfð eru að leiðarljósi í daglegu starfi. Hún leggur áherslu á fáar en skýrar reglur sem stuðla að öryggi, virðingu og vellíðan.

Hugmyndafræði
Heilsuleikskólinn Heiðarsel starfar samkvæmt Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Meginmarkmið stefnunnar er að stuðla að heilsueflingu leikskólasamfélagsins með áherslu á hreyfingu, næringu og sköpun í leik og starfi.
Öll börn fá skipulagðar hreyfistundir með íþróttafræðingi tvisvar til þrisvar í viku. Hreyfistundirnar tengjast áherslum leikskólans og þeim þáttum sem metnir eru í Heilsubók barnsins.
Matseðlar byggja á næringarstefnu heilsuleikskólanna og opinberum ráðleggingum um mataræði. Áhersla er lögð á fjölbreyttan heimilismat og að matur sé unninn sem mest frá grunni. Börn með fæðuóþol eða fæðuofnæmi fá mat sem hentar þeirra þörfum og er eins sambærilegur og kostur er við þann mat sem í boði er fyrir önnur börn.
Einkunnarorð Heiðarsels eru
HREYFING – NÆRING – LISTSKÖPUN – LEIKUR
