Ævintýrasmiðja er sumarstarf Skjólsins fyrir þau sem sækja Skjólið, og börn og ungmenni á grunnskólaaldri með langvarandi stuðningsþarfir. Starfið hefst í lok skólaárs.
Í boði er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá, meðal annars vettvangsferðir, sund og heimsóknir á söfn. Markmiðið er að bjóða upp á innihaldsríkt og öruggt sumarstarf þar sem lögð er áhersla á félagsfærni, samveru og jákvæða upplifun.
Ævintýrasmiðjan er opin í 6 vikur yfir sumarið. Þú getur skráð barnið þitt í eina til fjórar vikur.
Umsókn í Ævintýrasmiðju
Til að sækja um Ævintýrasmiðju þarftu fyrst að bóka viðtal hjá ráðgjafa á velferðarsviði.
Í viðtalinu förum við yfir stöðu barnsins og metum hvort Ævintýrasmiðja henti sem úrræði.Eftir að stuðningsþarfir hafa verið metnar fer umsókn fram í gegnum Abler.io
Þú getur bókað viðtal á nokkra vegu.
- Bóka viðtal á vefnum
- Hafa samband með tölvupósti
Þú getur sent okkur tölvupóst á reykjanesbaer@reykjanesbaer.is
- Hringja í Þjónustuver
Hringdu í Þjónustuver í síma 421 6700.