Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Félagsstarf og hreyfing

Félagsleg samvera og hreyfing skipta miklu máli fyrir vellíðan og heilsu eldra fólks. Í Reykjanesbæ er fjölbreytt félagsstarf í boði allt árið.

Félagsstarf og hreyfing

Félagsleg samvera og hreyfing skipta miklu máli fyrir vellíðan og heilsu eldra fólks. Í Reykjanesbæ er fjölbreytt félagsstarf í boði allt árið.

Félagsstarfið fer að mestu fram í þjónustumiðstöðinni á Nesvöllum, en einnig í Virkjun, Reykjaneshöll og Íþróttaakademíu. Dagskrá félagsstarfs og viðburða er auglýst á Facebook-síðu Nesvalla.

Félagsstarf í boði

Í boði er meðal annars:

  • Viðburður á föstudögum kl. 14:00 á Nesvöllum (auglýst á Facebook)
  • Listasmiðja, handverk og keramik
  • Stólaleikfimi
  • Dans
  • Bingó
  • Félagsvist og bridge
  • Boccia
  • Pútt
  • Ganga í Reykjaneshöllinni og fleira

Þjónustukort

Þjónustukortið er notað til að greiða í stólaleikfimi, listasmiðju og boccia. Kortið er til sölu í Listasmiðju og á þjónustuborði á Nesvöllum.

Hreyfing og afþreying

Í Reykjanesbæ er nóg að gera

Eldra fólk í Reykjanesbæ hefur aðgang að fjölbreyttum möguleikum til hreyfingar og afþreyingar. Fyrir hugmyndir og framboð er líka hægt að skoða Frístundir.is og velja Reykjanesbæ.

Frístundastyrkur fyrir eldra fólk

Eldra fólk, 67 ára á árinu eða eldra, getur fengið 45.000 krónur í frístundastyrk til að niðurgreiða íþrótta- og tómstundastarf sem stuðlar að betri heilsu og hreysti.

Til að fá frístundastyrk getur þú:

  • komið með greiðslukvittun í Þjónustuver Reykjanesbæjar og fyllt út eyðublað
  • eða sótt rafrænt um hvatagreiðslu ef greitt er fyrir námskeið í gegnum Abler

Reglur um frístundastyrk má lesa í reglum um frístundastyrk fyrir 67 ára og eldri.