Fjárhagsaðstoð er úrræði sem tryggir lágmarksframfærslu fyrir þá einstaklinga og fjölskyldur sem ekki hafa tekjur eða kost á öðrum framfærsluúrræðum. Það er eins konar öryggisnet fyrir þá sem eiga ekki rétt, eða önnur úrræði duga ekki.
Fjárhagsaðstoð:
- er til framfærslu, ekki til greiðslu skulda eða fjárfestinga
- er skattskyld
- getur verið í formi styrks eða láns
Athugaðu fyrst hvort þú eigir rétt á öðrum stuðningi
Áður en þú sækir um hjá okkur er gott að kanna hvort þú eigir rétt á stuðningi annars staðar, til dæmis hjá:
Fjárhagsaðstoð er síðasta úrræði
Við veitum fjárhagsaðstoð þegar önnur úrræði duga ekki. Þess vegna er gert ráð fyrir að þú nýtir eigið fé og eignir til framfærslu áður en aðstoð er metin.
Það getur til dæmis átt við um:
- Laust fé og sparnað
- Eignir sem eru ekki nauðsynlegar í daglegu lífi, til dæmis aukabifreið
- Fasteignir aðrar en lögheimili
Réttur til fjárhagsaðstoðar
Til að hægt sé að meta rétt þinn á fjárhagsaðstoð þarftu að:
- eiga lögheimili í Reykjanesbæ
- vera 18 ára eða eldri
- hafa tekjur og eignir, þínar og maka, undir viðmiðunarmörkum
- vera undir viðmiðunarmörkum í umsóknarmánuði og tvo mánuði þar á undan
Sækja um fjárhagsaðstoð
Sótt er um fjárhagsaðstoð á Mínum síðum á Ísland.is.
Með umsókninni þarf að fylgja:
- stöðuyfirlit um innistæður í bönkum eða öðrum fjármálastofnunum í umsóknar mánuði og mánuði þar á undan.
- Innborganir á bankareikninga í umsóknarmánuðinum og mánuði þar á undan.
- launa- og greiðsluseðlar síðustu tveggja mánaða, til dæmis: launaseðlar greiðsluáætlun frá Tryggingastofnun lífeyrissjóðsgreiðslur atvinnuleysisbætur aðrar tekjur
Einnig getur þurft að skila inn öðrum gögnum, til dæmis:
- húsaleigusamningi
- staðfestingu frá Vinnumálastofnun ef bótarétti er lokið
- læknisvottorði eða staðfestingu á umsókn hjá Tryggingastofnun
- staðfestingu frá sjúkrasjóði stéttarfélags og Sjúkratryggingum Íslands
Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar
- Allt að 204.580 kr. á mánuði fyrir einstakling
- Allt að 327.328 kr. á mánuði fyrir hjón eða fólk í sambúð
Greiðslur miðast við búsetuaðstæður:
- allt að 80% af grunnfjárhæð ef ekki er þinglýstur húsaleigusamningur
- allt að 40% af grunnfjárhæð ef búið er hjá foreldrum, ættingjum eða aðstandendum
Upphæðin er óháð barnafjölda. Gert er ráð fyrir að barnabætur, meðlög og umönnunargreiðslur mæti kostnaði vegna barna.
Ertu óviss um stöðuna?
Ef þú ert ekki viss um hvað á við í þínu máli geturðu haft samband við okkur.
Við förum yfir stöðuna með þér og leiðbeinum þér um næstu skref.
Hafðu samband með því að hringja í 4216700 til þess að óska eftir tíma hjá ráðgjafa eða sendu tölvupóst á virkni@reykjanesbaer.is
Ef umsókn er synjað
Ef umsókn um fjárhagsaðstoð er synjað áttu rétt á að vísa málinu til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjanesbæjar. Beiðni þarf að berast innan 4 vikna.
Áfrýjunarnefnd fundar á um það bil 3ja vikna fresti.
Beiðni til áfrýjunarnefndar er send í gegnum Mínar síður.
Ef velferðarráð staðfestir niðurstöðuna hefur þú 3 mánuði til að kæra málið til úrskurðarnefndar velferðarmála