Laun og launagreiðslur
Laun ungmenna í Vinnuskóla Reykjanesbæjar miðast við hlutfall af launaflokki 117. Launaseðlar birtast í heimabanka fyrsta hvers mánaðar undir „rafræn skjöl“.
Launatímabil er frá 15. til 14. hvers mánaðar.
Ungmenni þurfa að vera með bankareikning í eigin nafni.
Persónuafsláttur og skattkort
Ungmenni sem eru 16 ára á árinu þurfa að skila skattkorti rafrænt til að nýta persónuafslátt sinn. Leiðbeiningar um skil eru veittar á vef Skattsins og senda þarf staðfestingu til hjalp.launadeild@reykjanesbaer.is.
Forföll og leyfi
Forföll og leyfi eru skráð í tímaskráningarkerfinu Völu. Ef ungmenni mætir ekki í vinnu án skráningar er haft samband við forsjáraðila.