
Hefðbundið starf felur í sér fegrun á umhverfinu, um leið og ungmennin þjálfast í góðum vinnubrögðum sem nýtast þeim til framtíðar. Markmið Vinnuskólans er að veita ungmennum fyrstu reynslu á vinnumarkaði, kenna ábyrgð, samvinnu og jákvæð samskipti í öruggu og skipulögðu umhverfi.
Fjölbreytt sumarstörf
Ungmenni í 9. og 10. bekk hafa einnig kost á að sækja um fjölbreytt sumarstörf hjá samstarfsaðilum Vinnuskólans. Þar á meðal eru æskulýðs- og íþróttafélög og tilteknar stofnanir Reykjanesbæjar.
Umsóknir í Vinnuskólann
Opnað verður fyrir umsóknir í Vinnuskólann fyrir sumarið 2026 þann 13. apríl. Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarvef Vinnuskólans.
Starfstímabil og vinnutími
Vinnuskólinn starfar frá 15. júní til 30. júlí. Ungmenni hafa sjö vikur til að skila inn tilgreindum fjölda vinnustunda og geta unnið upp forföll vegna veikinda, tómstunda eða annarra viðburða.
Vinnutími eftir aldri
8. bekkur (14 ára á árinu) Kl. 08:30 – 11:30 Allt að 60 klst
9. og 10. bekkur (15–16 ára á árinu) Kl. 08:30 – 15:30 Allt að 120 klst Hádegismatur er 1 klst og telst ekki til vinnutíma.
Kaffitímar eru:
- kl. 10:00 – 10:15
- kl. 14:00 – 14:15
Jákvæð samskipti og öryggi
Vinnuskólinn leggur ríka áherslu á jákvæð samskipti, öryggi og vellíðan ungmenna. Ef upp koma samskiptavandi eða einelti er leitað lausna í samráði við ungmenni og forsjáraðila.
Starfsfólk fær reglulega fræðslu um:
- vinnuvernd ungmenna
- mörk og samskipti
- skyndihjálp
- sértækar stuðningsþarfir
Hafðu samband
Hægt er að hafa samband vegna Vinnuskólans með eftirfarandi hætti:
Netfang: vinnuskoli@reykjanesbaer.is Sími: 420 3205
Sími skrifstofu er opinn frá 13. apríl – 15. ágúst, mánudaga til fimmtudaga kl. 07:30 – 16:00. Fylgstu með starfinu
Við hvetjum bæjarbúa til að fylgjast með Vinnuskóla Reykjanesbæjar á samfélagsmiðlum þar sem reglulega eru birtar myndir og fréttir af starfinu.
Facebook: Vinnuskóli Reykjanesbæjar Instagram: vinnuskolireykjanesbaejar

