Vertu með okkur í Aðventugarðinum 2026
Undirbúningur fyrir Aðventugarðinn í Reykjanesbæ er hafinn og nú leitum við að fjölbreyttum söluaðilum, skapandi fólki og skemmtilegum dagskráratriðum til að skapa með okkur notalega og lifandi jólastemningu í garðinum á aðventunni. Aðventugarðurinn verður opinn allar helgar í desember, frá kl. 15-18 laugardaga og 13-16 sunnudaga. Á laugardögum njótum við þess þegar rökkrið færist yfir og jólaljósin taka við en leggjum áherslu á fjölskyldur og yngri gesti á sunnudögum.
Hér fyrir neðan getur þú sótt um sölupláss og um að standa fyrir atriðum í Aðventugarðinum.
Spurt og svarað
Aðventugarðurinn er í Skrúðgarðinum í Keflavík.
Hægt er að fá frekari upplýsingar í síma 421 6700 eða með tölvupósti á adventugardur@reykjanesbaer.is.

