1. Þarf ég leyfi?
A. Undanþegið leyfi og tilkynningu
Eftirfarandi framkvæmdir eru undanþegnar byggingarleyfi, byggingarheimild og tilkynningarskyldu, að því gefnu að þær samræmist skipulagi og gildandi reglugerðum:
- Allt viðhald innan- og utanhúss
- Endurnýjun léttra innveggja
- Uppsetning móttökudiska (allt að 1,2 m)
- Viðhald lóða, girðinga, bílastæða og innkeyrslna
- Gerð palla og frágangur á jarðvegsyfirborði samkvæmt hæðar- og fjarlægðarmarka
- Skjólveggir og girðingar samkvæmt hæðar- og fjarlægðarmarka
- Smáhýsi allt að 15 m² og 2,5 m á hæð (ekki til búsetu)
Ekki þarf að sækja um byggingarleyfi vegna þessara framkvæmda, sbr. 2.3.5. gr. byggingareglugerðar nr. 112/2012
B. Tilkynningarskyld framkvæmd (engin byggingarheimild)
Sumar framkvæmdir eru undanþegnar byggingarleyfi en þarf að tilkynna byggingarfulltrúa áður en hafist er handa.
Dæmi:
- Nýklæðning húsa
- Heitir/kaldir pottar við íbúðarhús
- Minniháttar breytingar á burðarvirki eða brunahólfun
- Breytingar á lögnum
- Tjaldhýsi í atvinnustarfsemi
- Stöðuhýsi lengur en 4 mánuði
Tilkynnt er um framkvæmd á: Mitt Reykjanes – Tilkynningarskyld framkvæmd
Hefja má framkvæmdir þegar staðfesting liggur fyrir (eða 3 vikur eru liðnar án athugasemda).
Hönnuður er áskilinn, en ekki er gerð krafa um byggingarstjóra.
2. Byggingarleyfi
Ef framkvæmd fellur ekki undir ofangreint þarf að sækja um byggingarleyfi.
Byggingarleyfi skiptast í þrjá umfangsflokka.
Umfangsflokkur 1
Minni mannvirki, t.d.:
- Geymslur
- Frístundahús
- Bílskúrar
- Viðbyggingar
- Niðurrif
Sótt er um á: byggingarleyfi.hms.is
Krafist er löggiltra hönnuða og byggingarstjóra.
Umfangsflokkur 2
Meðalstór mannvirki, t.d.:
- Íbúðarhús
- Atvinnuhúsnæði
- Iðnaðarhús
- Gistiheimili
Sótt er um á: byggingarleyfi.hms.is
Krafist er hönnunarstjóra, byggingarstjóra og skráðra iðnmeistara.
Umfangsflokkur 3
Stór og samfélagslega mikilvæg mannvirki, t.d.:
- Skólar
- Verslunarmiðstöðvar
- Íþróttamannvirki
- Sjúkrahús
- Stórar veitur
Sótt er um á: byggingarleyfi.hms.is
Strangar kröfur eru gerðar um hönnun, eftirlit og úttektir.
3. Úttektir og eftirlit
- Byggingarstjóri framkvæmir áfangaúttektir
- Byggingarfulltrúi framkvæmir öryggis- og lokaúttekt
4. Meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs
Skila þarf áætlun um meðhöndlun úrgangs áður en framkvæmdir hefjast þegar:
- Nýbygging eða viðbygging er 300 m² eða stærri
- Viðgerðir á útveggjum eða þaki eru 100 m² eða stærri
- Niðurrif er 100 m² eða stærra
- Úrgangur er áætlaður 10 tonn eða meira
Áætlun er fylgiskjal með byggingarleyfisumsókn.
5. Stöðuleyfi
Sækja þarf um stöðuleyfi ef eftirfarandi standa lengur en 2 mánuði:
- Hjólhýsi (1. okt – 1. maí)
- Gámar
- Bátar
- Samkomutjöld
- Torgsöluhús
Sótt er um á: Mitt Reykjanes – Umsókn um stöðuleyfi
Stöðuleyfi er veitt að hámarki til 12 mánaða.

