Lausar lóðir
Lausar lóðir í Reykjanesbæ eru birtar á Kortasjá. Þar geturðu skoðað hvaða lóðir eru í boði og fengið helstu upplýsingar á einum stað.
Á Kortasjá finnur þú meðal annars:
- stærð lóðar
- byggingarmagn
- fjölda hæða og íbúða
- gatnagerðargjöld samkvæmt gjaldskrá þess mánaðar
- lóðarblað og aðrar lykilupplýsingar
Hvernig sæki ég um lóð?
Sótt er um lóðir í gegnum Mitt Reykjanes. Umsóknir eru teknar fyrir í skipulagsráði Reykjanesbæjar.
Útboð lóða
Reykjanesbær auglýsir lóðir til úthlutunar með útboði samkvæmt ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs og í samræmi við gildandi reglur og skilmála sveitarfélagsins.
Útboð eru auglýst opinberlega á vef Reykjanesbæjar. Í útboðsgögnum koma fram upplýsingar um viðkomandi lóðir, lágmarksverð ef við á, byggingarskilmála, greiðslufyrirkomulag og skilafrest tilboða.
Framlagning tilboða
Tilboð skulu berast innan auglýsts frests og í því formi sem kveðið er á um í útboðsskilmálum. Tilboð sem berast eftir auglýstan skilafrest eða uppfylla ekki skilmála útboðs eru ekki tekin til greina.
Að loknum tilboðsfresti eru tilboð opnuð og tekin fyrir hjá skipulagsráði, sem leggur fram tillögu um úthlutun.
Reykjanesbær áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum.
Nánari upplýsingar
Útboðsgögn og nánari upplýsingar eru birt með hverju útboði á vef Reykjanesbæjar. Fyrirspurnir skulu berast innan þess frests sem tilgreindur er í útboðsskilmálum.