Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Skipulagsmál

Skipulagsmál snúa að framtíðarnotkun lands, uppbyggingu hverfa og þróun byggðar í Reykjanesbæ. Hér finnur þú upplýsingar um aðalskipulag, deiliskipulag, skipulagsauglýsingar, grenndarkynningar og lausar lóðir. Erindi til skipulagsfulltrúa skal senda í gegnum Mínar síður.

Aðalskipulag

Aðalskipulag er stefnumótandi skipulagsáætlun fyrir allt sveitarfélagið. Þar er sett fram stefna um framtíðarnotkun lands og þróun byggðar til 15 ára í senn. Sveitarstjórn ber ábyrgð á gerð aðalskipulags og skal endurskoða það á fjögurra ára fresti í upphafi kjörtímabils. Aðalskipulag tekur gildi þegar það hefur verið samþykkt í sveitarstjórn og staðfest af Skipulagsstofnun.

Skipulagsauglýsingar

Skipulagsmál í vinnslu eru auglýst opinberlega. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin og senda inn athugasemdir innan auglýsts frests.

Athugasemdir má senda: skipulag@reykjanesbaer.is

Athugasemdir teljast opinber gögn samkvæmt skipulagslögum og birtast meðal annars í fundargerðum ráða.
Skipulagsauglýsingar eru birtar á vef Reykjanesbæjar undir Skipulagsauglýsingar.

Grenndarkynning

Grenndarkynning fer fram þegar:

  • Deiliskipulag liggur ekki fyrir
  • Um óverulega breytingu á deiliskipulagi er að ræða
  • Framkvæmd getur haft áhrif á nágranna

Nágrönnum sem taldir eru eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að tjá sig innan a.m.k. fjögurra vikna.

Dæmi um þegar grenndarkynning á við:

  • Viðbygging eða bílskúr
  • Bygging á auðri lóð í þegar byggðu hverfi
  • Hækkun þaks
  • Fjölgun íbúða
  • Breyting á lóðamörkum eða bílastæðum
  • Leiksvæði
  • Hljóðveggir

Skipulagsnefnd metur í hverju tilviki hverjir teljast hagsmunaaðilar.

Deiliskipulag

Deiliskipulag nær til afmarkaðra svæða, svo sem hverfa eða lóða. Þar eru sett nákvæm ákvæði um:

  • Byggingarheimildir
  • Notkun lands
  • Legu gatna og lóða
  • Byggingarmagn og hæðir
  • Frágang umhverfis

Áður en deiliskipulag er samþykkt er það auglýst og lagt fram til kynningar í að minnsta kosti sex vikur. Þá geta íbúar sent inn athugasemdir.

Hvar finn ég deiliskipulag?

  • Á Kortavef Reykjanesbæjar (Skipulag – Deiliskipulag)
  • Í Skipulagsvefsjá