Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Fráveita

Á undanförnum árum hefur verið lögð markviss áhersla á að bæta frárennslismál í Reykjanesbæ. Fráveitur samanstanda af mannvirkjum sem eru reist til að flytja, hreinsa og meðhöndla skólp, þar á meðal lagnir, leiðslukerfi, safnræsi og hreinsibúnað.

Fráveita og mengun

Fráveitukerfi Reykjanesbæjar er að mestu tvöfalt í nýrri hverfum (byggðum eftir 1970). Skólp frá heimilum og fyrirtækjum er leitt í hreinsistöð við Fitjabraut 1a.

Ofanvatn, þ.e. regnvatn og leysingarvatn, rennur af þökum, götum og öðru þéttu yfirborði. Það fer í sérstakt ofanvatnskerfi og er losað í viðtaka, svo sem læki eða strandsjó.

Í nýrri byggð er lögð áhersla á blágrænar ofanvatnslausnir, þar sem vatn er leyst innan lóðar. Í eldri byggð rennur regnvatn víða enn í skólpkerfið, en unnið er að því að aðskilja kerfin.

Heilbrigðiseftirlit og ábyrgð íbúa

Heilbrigðiseftirlit fær reglulega ábendingar um mengun sem berst með ofanvatni. Mikilvægt er að mengandi efni fari ekki í niðurföll.

Ekki má setja í niðurföll:

  • Málningu og þynni
  • Fitu og olíu
  • Hreinsiefni eða önnur spilliefni

Spilliefni skal skila á grenndarstöð eða móttökusvæði Kölku.

Almennt um fráveitu

Fráveituvatn er vatn sem hefur verið notað, til dæmis úr baði, vöskum, salernum, þvottavélum eða bílaþvotti. Við notkun blandast vatnið úrgangi, matarleifum, olíum og hreinsiefnum.

Hver og einn ber ábyrgð á að koma í veg fyrir að mengandi efni fari í fráveitu, þar sem það getur skaðað umhverfið og valdið skemmdum á kerfinu.

Regluverk

  • Reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp
  • Lög nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna

Reglurnar kveða á um hreinsun skólps og skyldur sveitarfélaga og fasteignaeigenda.

Skyldur fasteignaeigenda

Fasteignaeigendur bera ábyrgð á:

  • Lagningu og viðhaldi heimæða
  • Réttum tengingum við fráveitukerfi
  • Aðskilnaði ofanvatns og skólps við endurnýjun
  • Að tryggja að lagnir stíflist ekki

Rotþrær og siturlagnir

Hús sem ekki er hægt að tengja við fráveitukerfi skulu hafa rotþró.

Sækja þarf um byggingu eða endurgerð rotþróar til Byggingafulltrúa Reykjanesbæjar með tilheyrandi teikningum og gögnum.

Reglur um rotþrær eru í reglugerð nr. 798/1999.

Bráðamengun

Bráðamengun er skyndilegur atburður sem krefst tafarlausra viðbragða.

  • Mengun á landi: hringið í 112
  • Mengun á sjó: hringið í Landhelgisgæsluna 511 3333

Slökkviliðsstjóri fer með stjórn á vettvangi við mengunaróhöpp á landi.

Bílaþvottur

Ekki er æskilegt að þvo bíla með efnum við heimahús. Mengandi efni geta borist í náttúruna.

Mælt er með að:

  • Nota bílaþvottastöðvar með hreinsibúnaði
  • Nota umhverfisvottuð hreinsiefni
  • Sleppa efnum ef hægt er

Blágrænar ofanvatnslausnir í Reykjanesbæ

Reykjanesbær leggur áherslu á vistvænar lausnir þar sem ofanvatn er nýtt og leitt niður í jarðveg innan lóða. Slíkar lausnir draga úr álagi á fráveitukerfi og minnka hættu á mengun og flóðum.

Hafa samband

Samskipti við fráveitu

Hægt er að hafa samband við fráveitu Reykjanesbæjar vegna fyrirspurna og upplýsinga með tölvupósti á fraveita@reykjanesbaer.is. Einnig er hægt að hafa samband við bakvakt fráveitu í gegnum síma 420 3204.