
Opnunartími
Mánudagar til fimmtudagar: 07:00–16:00 Föstudagar: 07:00–12:30
Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar Fitjabraut 1c, 260 Reykjanesbæ Sími: 420 3200
Neyðarsími er opinn eftir kl. 16:00 vegna mála sem varða opinberar byggingar Reykjanesbæjar, fráveitu og gatnakerfi bæjarins.
Helstu verkefni
- Viðhald og hreinsun gatna, gangstétta og göngustíga
- Viðhald og hreinsun holræsa
- Uppsetning og viðhald umferðarmerkja
- Viðhald umferðarljósa og biðskýla
- Snjómokstur og hálkuvarnir
- Viðhald almenningsgarða og opinna svæða
- Uppsetning og viðhald jólaskreytinga og jólatrjáa
- Aðstoð við opinber hátíðarhöld, svo sem 17. júní
- Þjónusta við stofnanir bæjarins
Sækja þarf um leyfi vegna framkvæmda sem fela í sér gröft í landi bæjarins
- Hvernig sæki ég um?
1. Farið inn á kortasjá Reykjanesbæjar.
2. Veljið skurðgröfu-táknið.
3. Teiknið inn svæðið þar sem óskað er eftir leyfi.
4. Að því loknu birtist umsóknareyðublað sjálfkrafa sem fylla þarf út.