Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Flokkun og úrgangshirða

Í Reykjanesbæ er flokkað í fjóra flokka við hvert heimili samkvæmt lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs:

  • Pappír og pappi
  • Plastumbúðir
  • Matarleifar
  • Blandaður úrgangur

Auk þess er gler, málmum og textíl safnað á grenndarstöðvum.

Algengar spurningar

Spurningar og svör

Hvað má fara í tunnurnar?

Merking á tunnu segir til um innihald. Ef vafi leikur á má nota www.flokkum.is.

Hversu hreint þarf endurvinnsluefni að vera?

Það þarf að vera nokkuð hreint en ekki sótthreinsað.

Hvað gerist ef ég flokka ekki rétt?

Tunnan getur verið skilin eftir þar til rétt hefur verið flokkað.

Hvernig breyti ég tunnum við heimilið mitt?

Hafa þarf samband við Kölku. Breytingagjald er innheimt samkvæmt gjaldskrá.

Hvað geri ég ef tunnan er brotin?

Tilkynna skal það til Kölku í gegnum vef þeirra.

Matarleifar

Matarleifum skal safna í bréfpoka í þar til gerðri körfu. Bréfpokar jarðgerast og tryggja að moltan nýtist sem best.

Matarleifar frá Suðurnesjum fara í GAJU, þar sem þær eru unnar í metangas og jarðvegsbæti.

Tæmingar

  • Pappír og plast: tæmt á 4 vikna fresti (Íslenska Gámafélagið)
  • Matarleifar og blandaður úrgangur: tæmt á 2 vikna fresti (Terra)

Dagatöl má finna á vefjum þjónustuaðila og Kölku.

Gjaldtaka – „borgað þegar hent er“

Greitt er fyrir þær tunnur sem eru við heimili. Allir þurfa að flokka í fjóra flokka, en íbúar geta valið stærð og tegund íláta samkvæmt gjaldskrá.

Kostnaður er innheimtur með fasteignagjöldum. Breytingagjald er tekið fyrir breytingar á tunnum.

Grenndarstöðvar

Á grenndarstöðvum má skila:

  • Gleri
  • Málmum
  • Textíl

Staðsetningar má finna á kortavef Reykjanesbæjar undir Umhverfi – Grenndar- og endurvinnslustöðvar.

Mikilvægt að muna

  • Merking á tunnu ræður flokki, ekki litur.
  • Ef vafi leikur á flokkun má nota leitarvélina á www.flokkum.is.
  • Rangflokkun getur leitt til þess að tunnur séu ekki tæmdar.

Endurvinnsluefni þarf að vera hreint en ekki sótthreinsað.

Breytingar eða bilanir

Viljir þú breyta tunnum eða tilkynna brotið ílát skal hafa samband við Kölku. Eigendur bera ábyrgð á að aðgengi og sorpskýli uppfylli kröfur byggingarreglugerðar.