◉ Stapagata 10, 260 Reykjanesbær
@ holt@leikskolinnholt.is
✆ 420 3175
◴ 07:45 – 16:15
Um leikskólann
Leikskólinn Holt er staðsettur við Stapagötu 10 í Njarðvík og var opnaður 15. mars 1985.
Skólinn var upphaflega tveggja deilda en hefur verið stækkaður í áföngum. Í dag er Holt sex deilda leikskóli með rými fyrir 106 börn.
Holt er Grænfánaskóli, Heilsueflandi skóli og starfar samkvæmt hugmyndafræði Reggio Emilia. Þar er lögð áhersla á barnið, hæfileika þess og áhuga, leikinn og umhverfið sem „þriðja kennarann“.
Börn eru hvött til að spyrja spurninga, rannsaka umhverfi sitt og læra með skapandi hætti. Kennarar taka virkan þátt í námsferlinu og styðja við þroska og nám hvers barns með leik og fjölbreyttum efniviði.

Hugmyndafræði
Á Holti er unnið samkvæmt hugmyndafræði Reggio Emilia. Við leggjum meðal annars áherslu á umhverfið sem „þriðja kennarann“ og sköpum fallegt og hvetjandi umhverfi sem styður við leik, forvitni og nám.
Listræn sköpun er mikilvægur þáttur í starfinu. Börnin fá tækifæri til að tjá sig og læra í gegnum liti, form, tónlist, hreyfingu og annan skapandi efnivið.
Við lítum á hvert barn sem getumikinn einstakling með hæfileika og vilja til að læra. Hlutverk okkar er að styðja við forvitni barnanna og taka virkan þátt í námi þeirra sem leiðbeinendur, stuðningur og fyrirmyndir.
Nánari upplýsingar má finna í starfsáætlun leikskólans og skólanámskrá.
Einkunnarorð Holts eru
