Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Grunnskólar

Í Reykjanesbæ eru sjö grunnskólar fyrir börn 6–16 ára með lögheimili í bænum. Samvinna, fagmennska, traust og sköpun eru leiðarljós. Í skólunum er boðið upp á heitan mat og frístund til kl. 16:15. Nánari upplýsingar eru á vefsíðum skólanna.

Skólavist og skólahverfi

Nemendur sækja skóla eftir skólahverfum. Ef takmarka þarf nemendafjölda hafa börn með lögheimili í hverfinu forgang. Forsjáraðilar sækja um skólavist. Umsóknir utan lögheimilis eru afgreiddar samkvæmt viðmiðunarreglum Sambands íslenskra sveitarfélaga.