Barnahátíð í Reykjanesbæ

Viðburðir fyrir börn og foreldra

Barnahátíð í Reykjanesbæ hefur verið haldin hátíðleg vor hvert frá árinu 2006.
Áhersla er lögð á listsköpun og upplifun barna og taka þau virkan þátt.


Margir koma að undirbúningi hátíðarinnar og boðið er upp á margs konar viðburði fyrir börn og foreldra. Markmið hátíðarinnar er að skapa foreldrum og börnum fjölbreytt tækifæri til frjórrar og gefandi samveru og stuðla þannig að fjölskylduvænum Reykjanesbæ.

Söfnin í bænum og leik- og grunnskólar ásamt öðrum stofnunum sem og íþróttafélög, tómstundafélög og menningarfélög taka virkan þátt í hátíðinni en að auki er öllum bæjarbúum boðin þátttaka.


Stór liður í barnahátíð er Listahátíð barna sem er samvinnuverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra leikskóla í Reykjanesbæ. Hátíðið hefur vaxið og eflst með hverju ári og segja má að hún hafi orðið kveikjan að barnahátíðinni þar sem virðing fyrir börnum og störfum þeirra er höfð að leiðarljósi.

Sjá barnahatid.is

Fréttir