Virkni og endurhæfing

Fólk þarf stundum endurhæfingu eða stuðning til þess að komast í vinnu eða virkni.

Þá er í boði ráðgjöf, fræðsla og úrræði sem taka mið af þörfum hvers og eins.

Með virkri þátttöku í samfélaginu öðlast íbúar félagslega færni, bætta sjálfsmynd, aukin lífsgæði og vellíðan.

Björgin – Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er eitt þeirra úrræða sem er í boði.