Almannavarnir

 

Hagnýtir tenglar


Mikil skjálftavirkni og jarðhræringar hafa staðið yfir á Reykjanesi að undanförnu. Við viljum hvetja íbúa til að kynna sér efni á þessum síðum og huga að forvörnum og viðbrögðum ef til þess kæmi að skjálftarnir yrðu stærri og ef það færi að gjósa.

Upplýsingasíða um jarðhræringar á Reykjanesi frá Almannavörnum https://reykjanes.almannavarnir.is

Hér fyrir neðan má finna rýmingaráætlun Reykjanesbæjar og heimasíðu Almannavarna (einnig á ensku, pólsku og frönsku), upplýsingasíðu um viðbrögð við jarðskjálftum og rýmingaráætlun Reykjanesbæjar (einnig á ensku og pólsku).

Almannavarna merki

Flýtihlekkir

Viðbrögð við jarðskjálftaEldgos og loftgæðiViðbragðs- og rýmingaráætlanir FjöldahjálparstöðvarHagnýtir tenglarMögulegt þjónusturof vegna náttúruhamfara

Jarðskjálftar

Jarðskjálftar verða þegar jarðskorpan brotnar eða hrekkur til á gömlum brotflötum. Þeir gera sjaldan boð á undan sér og því er mikilvægt að gera ráðstafanir til að draga úr tjóni við jarðskjálfta og læra rétt viðbrögð. 

Viðbrögð við jarðskjálfta

Ef þú ert innandyra þegar jarðskjálfti byrjar:

  • Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað.
  • Farðu undir borð eða rúm, verðu höfuð og háls, haltu þér í sterkbyggð húsgögn.
  • Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg – athugið að í nýjum húsum eru hurðarop oft ekki sérstaklega styrkt og þar er jafnan hurð sem getur sveiflast til. Gætið fyllstu varúðar og tryggið flóttaleið eftir skjálftann.
  • Verðu höfuð þitt og andlit með kodda ef þú vaknar upp við jarðskjálfta.
  • Haltu þig frá gluggum þar sem þeir geta brotnað.
  • Láttu þína nánustu vita af þér með SMS skilaboðum þegar jarðskjálftinn hættir.

Ef þú ert utandyra þegar þú finnur fyrir jarðskjálfta:

  • Vertu áfram úti og reyndu að finna skjól til að krjúpa, skýla, halda.
  • Reyndu að koma þér frá byggingum sem geta hrunið.
  • Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi.
  • Raflínur eru hættulegar ef þær slitna – varist að snerta þær.
  • Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að.
  • Farðu frá ströndinni ef þú ert á svæði þar sem hætta er á flóðbylgju.

Ef þú ert að keyra þegar þú finnur jarðskjálfta:

  • Leggðu ökutæki og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta.
  • Hafðu sætisbeltin spennt.
  • Haltu kyrru fyrir ef þú ert í bíl þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem hægt er að verða fyrir í jarðskjálfta.
  • Hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.
  • Ef vá ber að höndum og hættuástand ríkir verða leiðbeiningar um æskileg viðbrögð almennings gefnar um útvarp og sjónvarp ef kostur er.

Viðbúnaður vegna jarðskjálfta:

Varnir vegna jarðskjálfta:

Mikilvægt er að íbúar á þekktum jarðskjálftasvæðum geri ráðstafanir til að draga úr tjóni við jarðskjálfta. Það er hægt að gera á ýmsan hátt.

Húsgögn
Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg. Hafið hjól sem eru á húsgögnum alltaf í læstri stöðu. Ef engin læsing er á hjólunum, setjið þá ramma utan um hjólin til að koma í veg fyrir að húsgögnin fari af stað í jarðskjálfta. Munið hins vegar að rammi eða læsing á hjólum kemur ekki í veg fyrir að húsgögn velti. Festið létta skrautmuni með kennaratyggjó.

Festingar vegna jarðskjálftavirkni

Lausir munir og skrautmunir
Stillið þungum munum ekki ofarlega í hillur eða á veggi án þess að festa þá tryggilega. Hægt er að nota kennaratyggjó til að tryggja að léttari munir færist ekki úr stað við jarðskjálfta. Þungur borðbúnaður og hlutir eru best geymdir í neðri skápum, helst lokuðum.+

Kynditæki og ofnar
Festið kynditæki og ofna. Kynnið ykkur staðsetningu og lokun á vatnsinntaki og rafmagnstöflu. Festið hitaveituofna tryggilega. Leki getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað strax fyrir vatnið. Sama gildir um frágang á þvottavélum og uppþvottavélum.


Myndir, ljósakrónur
Festið myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur.


Skápahurðir
Geymið þungan borðbúnað í neðri skápum / skúffum og setjið öryggislæsingar / barnalæsingar á skápahurðir til varnar að innihald þeirra falli út úr þeim.


Svefnstaðir
Fyrirbyggið að skápar, málverk, brothættir og þungir munir geti fallið á svefnstaði. Varist að hafa rúm við stóra glugga og hlaðna milliveggi.


Loft og gólf
Gangið vel frá niðurhengdum loftum og upphækkuðum gólfum.


Rúður
Byrgið fyrir glugga eða setjið öryggisfilmu á rúður til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar. Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum.


Tryggingar
Bætur Náttúruhamfaratryggingar Íslands á fasteignum eru miðaðar við brunatryggingar, sem eru skyldutryggingar. Mikilvægt er að innbústryggingar sem eru frjálsar tryggingar, séu sem næst raunverulegu verðmæti innbús svo tjón fáist að fullu bætt.


Útvarp og tilkynningar
Hlustið á tilkynningar og fyrirmæli sem gefin eru í útvarpi. Gott er að hafa útvarp með langbylgju ef FM sendar detta út. Þá er hægt að hlusta á útvarp í bílum.


Símar
Farsímar duga skammt ef rafmagn dettur út í lengri tíma. Þá getur verið gott að eiga hleðslutæki til að hafa í bifreið eða hleðslubanka til að hlaða farsíma. Sendu SMS til þinna nánustu í stað þess að hringja (sérstaklega eftir stóran jarðskjálfta) til að minnka álag á símkerfi í hamförum.


Jarðskjálftaæfingar:
Á jarðskjálftasvæðum er hægt að draga úr afleiðingum jarðskjálfta með jarðskjálftaæfingum til að vera betur viðbúin þegar stór skjálfti verður. Krjúpa, skýla og halda er orðaröð sem rétt er að leggja á minnið.

Gott er að krjúpa út í horni við burðarvegg eða undir borði, skýla höfði og halda sér í. Finndu staði heima hjá þér, í vinnunni eða í skólanum þar sem öruggt er að vera ef það verður jarðskjálfti.


Mikilvægt er að hafa ávallt viðlagakassa tilbúinn sem allir á heimilinu vita um:
Safnið neyðarbúnaði í saman í viðlagakassa. Þar má geyma sjúkrakassa, vasaljós, útvarp, eldspýtur, kerti, rafhlöður og ýmsar sérþarfir heimilismanna sem erfitt er að vera án.

Jarðskjalftar - Nánari upplýsingar almannavarnir og viðbrögð:

Almannavarnir

Almannavarnir - Eftir jarðskjálfta

Almannavarnir - Krjúpa – Skýla – Halda – Spurningar og svör

 

Eldgos og loftgæði

Eldgos geta hafist fyrirvaralaust, en gera þó oftast boð á undan sér, t.d. með jarðskjálftum og jarðskorpuhreyfingum sem greinast á mælum Veðurstofunnar og fleiri stofnana. Hætta getur stafað frá eldgosum vegna hraunrennslis, eiturefna (H2S, SO2, F) og öskufalls. 

Viðbragðsáætlun Almannavarna og rýmingaráætlanir

Ríkislögreglustjóri gefur fyrirmæli um brottflutning fólks af hættusvæði og hér má sjá ferlið á rýmingaráætluninni.

Mögulegt þjónusturof vegna náttúruhamfara

Leiðbeiningar um það sem er mikilvægt að gera þegar hitaveita dettur út tímabundið

Frostskemmdir í húsum fara fyrst að gera vart við sig ef húshiti fer niður fyrir 4 gráður. Við núverandi veðurfar (frost/kuldi) er almennt hægt að gera ráð fyrir að slík kólnun eigi sér stað í húsum eftir 3-4 daga án hita.

  • Við núverandi veðurfar (frost/kuldi) er almennt hægt að gera ráð fyrir að slík kólnun eigi sér stað í húsum eftir 3-4 daga án hita.
  • Snjóbræðsla: Ef um er að ræða snjóbræðslu sem notar affall af húsinu er hætt við því að frostskemmdir myndist innan sólahrings. Mikilvægt er að blása vatni út úr því kerfi með loftpressu og dæla frostlegi í gegnum kerfið til að forðast tjón.
  • Heitur pottur: Ef affall hitaveitu fer í lögn fyrir heitan pott þá er hætt við því að frostskemmdir myndist innan sólahrings. Mikilvægt er að blása vatni út úr því kerfi með loftpressu og dæla frostlegi í gegnum kerfið til að forðast tjón.
  • Gluggar: Varmastreymi er mest í gegnum glugga húsa og því þarf að hafa glugga lokaða og draga gluggatjöld fyrir ef hægt er og jafnvel að verja með teppum eða dýnum til að hindra varmastreymið.
  • Rafmagns- og olíuhitarar: Takmarka skal notkun hitablásara sem ganga fyrir rafmagni eftir fremsta megni. Best er að staðsetja slíka hitablásara í tækjarýmum húsa til að koma í veg fyrir frostskemmdir í tækjarými en ekki að notast við þá til húshitunar. Gott er að hafa í huga að olíufylltir rafmagnsofnar skapa minna álag á rafveitukerfi svæðisins.
  • Gashitarar: Ef notast er við gashitara er mjög mikilvægt að huga að loftræstingu og ekki loka gluggum þar sem gashitarinn er staðsettur. Ekki yfirgefa hús með gashitun í gangi og farið eftir leiðbeiningum almannavarna við notkun þeirra.
  • Gólfhitakerfi: Ef um er að ræða gegnumstreymiskerfi með uppblöndun er æskilegt að taka hringrásardælur úr sambandi. Ekki þarf að taka hringrásardælur úr sambandi ef hitakerfi eru lokuð og á það við um bæði gólfhita og ofnakerfi.
  • Mat á ástandi fasteignar: Til viðmiðunar um kulda í húsum er hægt að setja upp hitamæla eða setja glas með vatni á gólf við útvegg til að fylgjast með því hvort vatn sé farið að hríma.

Félag pípulagningameistara og Samtök rafverktaka tóku saman. https://www.hsveitur.is/media/109907/leidbeiningar-fp.pdf

Fjöldahjálparstöðvar

Fjöldahjálparstöð er virkjuð að beiðni AST með tilkynningu þegar neyðarþörf liggur fyrir. Þar fer fram móttaka, skráning og hýsing þolenda. 

  • Reykjanesbær: Íþróttarhúsið við Sunnubraut, Stapaskóli
  • Suðurnesjabær: Grunnskólinn Garði, Grunnskólinn Sandgerði
  • Grindavík: Íþróttahúsið við Austurveg, Hópsskóli
  • Kópavogur: Kórinn íþróttahús

Upplýsingafundir