Fjölskyldan

Tími til samveru, gleði og þroska

Reykjanesbær leggur áherslu á að skapa fjölskyldunni tækifæri til samveru og má þar nefna viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtækja, frí uppeldisnámskeið fyrir foreldra, umönnunargreiðslur til foreldra eftir að fæðingarorlofi lýkur og áfram mætti lengi telja.

Reykjanesbær gaf fyrst sveitarfélaga öllum börnum á grunnskólaaldri frítt í sund, en sú breyting hefur haft það í för með sér að fjölskyldan nýtur enn frekar samveru í Vatnaveröld – fjölskyldusundlaug Reyknesinga.

Skessuhellirinn nýtur mikilla vinsælda og árlega eru haldnir skessudagar þar sem skessan býður í lummur og skemmtileg verkefni sem fjölskyldan getur öll notið saman. Þá má nefna hina árlegu barnahátíð á sumardaginn fyrsta sem hefst með listahátíð barna.


Áhugaverðir tenglar fyrir fjölskylduna:

skessan.is og á facebook
Landnámsdýragarður 
Vatnaveröld
Innileikjagarður fyrir börn á Ásbrú
Orkuverið Jörð
Söfn og sýningar

Fréttir