Íþróttir fyrir alla

Heilbrigð sál í hraustum líkama

Reykjanesbær hefur átt marga afreksmenn í íþróttum en mikil áhersla er lögð á stuðning við íþróttastarf frá unga aldri.

Körfuboltalið Keflavíkur og Njarðvíkur hafa háð marga hildina í Ljónagryfjunni og Sláturhúsinu. Hver man ekki eftir sundkappanum Eðvarði Þór Eðvarssyni? Knattspyrnuhetjurnar eru margar – og þekktar fyrir sín þrumuskot.

Mikil uppbygging hefur verið gerð á allri aðstöðu til íþróttaiðkunar í frístundum í Reykjanesbæ. Þannig er stuðlað að aukinni hreyfingu ungmenna og jákvæðri afþreyingu.

Við alla grunnskóla bæjarins er upphitaður og upplýstur gervigrasvöllur og við Holtaskóla, Akurskóla og Njarðvíkurskóla hafa verið settir upp körfuboltavellir af nýjustu gerð en undirlag þeirra er lagt sérstöku plastlagi svo hægt er að leika á vellinum í bleytu. Körfurnar eru sérstaklega vandaðar og vel hugað að öryggisatriðum.

Í Leiru er einn stærsti golfvöllur landsins, á Mánagrund er risin glæsileg reiðhöll og fyrsta yfirbyggða knattspyrnuhúsið, Reykjaneshöllin, reis í Reykjanesbæ.

Fimleikadeild Keflavíkur hefur tekið í notkun glæsilegt húsnæði og þar hefur iðkendafjöldi slegið öll met.

Eitt stærsta körfuboltamót landsins, Nettómótið, dregur til sín yfir 1000 körfuboltaiðkendur á unga aldri alls staðar að á landinu.

Stærstu íþróttafélögin eru Keflavík og Njarðvík. Að auki má nefna Hestamannafélagið Mána, Golfklúbb Suðurnesja, Íþróttafélagið Nes og Hnefaleikafélag Reykjaness

Áhugaverðir tenglar um íþróttir
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar
 

Fréttir