Menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar er haldin fyrstu helgina í september ár hvert og lýkur ávallt með lýsingu Bergsins og glæsilegri flugeldasýningu.
Bæjarbúar taka virkan þátt í hátíðinni og framboð menningarviðburða hefur aukist ár frá ári jafnt og gestafjöldi.
Áhersla er lögð á viðamiklar uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum.
Tónlistin leikur stórt hlutverk á Ljósanótt í rokkbænum Reykjanesbæ og má þar nefna fjölbreytta tónleika þar sem heyra má: blús, klassík, rokk og sjómannalög svo eitthvað sé nefnt.
Fjöldi myndlistarmanna sýna verk sín víðsvegar um bæinn auk þess sem gallerý og vinnustofur listamanna verða opnar. Á Listasafni Reykjanesbæjar og í sýningarrýminu Suðsuðvestri eru ávallt áhugaverðar sýningar.
Einnig má nefna götuleikhús, fjölbreytta barnadagskrá, kjötsúpu, púttmót, fornbíla, smábíla, fjöbreytta íþrótta- og tómstundaviðburði og svo margt fleira.
Ljósanótt er menningar- og fjölskylduhátíð án áfengis og eru foreldrar hvattir til þess að virða útivistartíma barna og unglinga.
Menningarsvið hefur umsjón með hátíðinni en starfsmaður þess er Valgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri, netfang valgerdur.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is.









.jpg?76x54;crop)

