Menntun

Metnaðarfull uppbygging

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í menntunarmálum í Reykjanesbæ m.a. í kjölfar mikillar íbúafjölgunar.

Leikskólar eru orðnir 10 talsins og þar fer fram metnaðarfullt starf þar sem hver og einn leikskóli hefur skapað sér sína sérstöðu.

Markvisst hefur verið unnið að því að fjölga réttindakennurum við grunnskóla Reykjanesbæjar og hefur fjöldi þeirra aukist jafnt og þétt en í dag eru réttindakennarar 95%. Margir starfsmenn eru með aðra framhaldsmenntun eða langt komnir í námi til kennsluréttinda.

Aðstaða nemenda við grunnskóla Reykjanesbæjar er mjög góð og í flestum grunnskólum geta nemendur sótt skólasund í sundlaug skólans. Einnig má nefna upphitaða og upplýsta sparkvelli við grunnskólana og við nokkra þeirra eru jafnframt komnir upp upphitaðir körfuboltavellir með hágæða körfum og undirlagi sem er nýtt sinnar tegundar á Íslandi.

Mikill fjöldi ungmenna stundar nám við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og þar fer fram metnaðarfullt samspil hópa auk fjölda lúðrasveita og léttsveitar.  Nemendur geta sótt hljóðfæranám innan grunnskólanna á skólatíma og hefur sú nýjung gefist vel.  Forskólanám tónlistarskóla er nemendum grunnskóla að kostnaðarlausu.

Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður framhaldsnám fyrir nemendur á Suðurnesjum og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum hefur eflt endurmenntun bæði fyrir einstaklinga og atvinnulíf.

Nýjasta viðbótin við fjölbreytta flóru menntunar er Keilir sem er aðhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka.  Námið byggir á fjórum mismunandi skólum:  Háskólabrú, HeilsuskólaOrku- og tækniskóla og Flugakademíu.

Fréttir