Fjármála- og rekstrarsvið annast innheimtu gjalda samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga og umsjón með gjaldendaskrá ásamt innheimtu á ýmsum reikningum og gjöldum svo sem leikskólagjöldum. Sviðið annast greiðslur á öllum reikningum og kröfum á bæinn og fyrirtæki hans.
Afgreiðsla er að Tjarnargötu 12. Gjaldkeri og innheimtustjóri er Guðfinna Eyjólfsdóttir. Afgreiðslan er opin frá 8.30-16.00 alla virka daga nema föstudaga til 15.00.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 421 6700.
Reykjanesbær hefur gert samning við Motus um milli- og lögfræðiinnheimtu. Fólk er hvatt til að semja um vanskil sem allra fyrst til að forðast óþarfa innheimtukostnað.
RAFRÆNIR GREIÐSLUSEÐLAR
Fasteignagjöld
Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda verða ekki lengur sendir út til greiðenda nema þeir óski eftir því sérstaklega. Greiðsluseðill vegna fasteignagjalda verður eingöngu birtur í heimabanka.
Hægt er að skoða yfirlit yfir allar greiðslur til Reykjanesbæjar á íbúavefnum mittreykjanes.is.
Með þessum aðgerðum er Reykjanesbær að auka hagkvæmni í rekstri og gera ferlið um leið umhverfisvænna.
Boðgreiðslur
Íbúum stendur til boða að greiða ýmsar reglubundnar greiðslur til Reykjanesbæjar með öruggum og auðveldum hætti með mánaðarlegri færslu af kreditkorti.
Þeir sem nýta sér þennan kost fá ekki lengur reikninga fyrir föstum greiðslum bæjarins en færsla á kreditkortayfirliti gildir í stað þess sem staðfesting á greiðslu.
Með þessu sparast mikil fyrirhöfn, bæði fyrir korthafa og Reykjanesbæ.
Þær greiðslur sem hægt verður að inna af hendi með boðgreiðslum eru: fasteignagjöld, leikskólagjöld, frístundaskóli, tónlistarskóli og heimaþjónusta.
Þeir íbúar sem hafa áhuga á því að notfæra sér þessa þjónustu geta haft samband við gjaldkera í síma 421 6700 eða sent tölvupóst á innheimta@reykjanesbaer.is.
Allir kortafar fá punkta af boðgreiðsluviðskiptum.
Leikskólagjöld
Í Reykjanesbæ eru starfræktir 10 leikskólar. Gert er ráð fyrir að greiðslur foreldra standi undir 35% Af kostnaði við rekstur leikskóla. Leikskólagjöld eru stór hluti af útgjöldum margra heimila og fólk hvatt til að ígrunda vel hversu mikla vistun það hefur þörf á. Upplýsingar um leikskólagjöld er að finna hér. Hér að neðan er að finna dæmi um kostnað við mismunandi langa vistunartíma:
| Leikskólar | ||||
| Tímagjald, kr./klst | 2.400 | |||
| Tímagjald (milli 17 og 18) | 3.750 | |||
| Forgangshópar tímagjald, kr./klst | 1.800 | |||
| - Fyrir annað barnið er greitt | 50% | |||
| - Fyrir þriðja barnið er greitt | Frítt | |||
| - Fyrir fjórða barnið er greitt | Frítt | |||
| Klst. á dag | 1 barn | 2 börn | 3 börn |
1 barn forgangur |
|---|---|---|---|---|
| 4 | 9.600 | 14.400 | 14.400 | 7.200 |
| 5 | 12.000 | 18.000 | 18.000 | 9.000 |
| 6 | 14.400 | 21.600 | 21.600 | 10.800 |
| 7 | 16.800 | 25.200 | 25.200 | 12.600 |
| 8 | 19.200 | 28.800 | 28.800 | 14.400 |
Verð miðast við fullt gjald, án afsláttar. Sé misræmi milli upplýsinga á þessari síðu og gjaldskrár gildir gjaldskráin. Upplýsingar um afslátt er að finna í gjaldskrá
Meginhlutverk fjármála- og rekstrarsviðs er að annast; fjármálastjórn bæjarsjóðs og stofnana hans, söfnun, vinnslu og dreifingu upplýsinga fyrir stofnanir bæjarins, bæjarfulltrúa og bæjarbúa, þ.e. vera samræmingaraðili milli nefndarkerfisins og embættismannakerfisins og að síðustu annast yfirumsjón starfsmannamála allra stofnana bæjarsjóðs.
Helstu verkefni
- Fjármálastjórn bæjarsjóðs og tengdra stofnana
- Eftirlit með tekjum og útgjöldum bæjarsjóðs, umsjón með lána- og sjóðastýringu. Leita leiða til að bæta verklag og auka hagræði í rekstri
- Hafa yfirumsjón með og stýra vinnu við fjárhagsáætlun og eftirfylgni, frávikagreiningu frá fjárhagsáætlu og kostnaðargreiningu
- Veita ráðum, þ.m.t. bæjarráði ráðgjöf, greiningu og upplýsingar varðandi það sem snýr að fjárhagslegum þáttum þeirra mála sem eru til meðferðar
- Veita ráðgjöf og þjónustu til stofnana bæjarins varðandi það sem snýr að fjármálum og rekstri
- Yfirumsjón með fjárreiðum, greiðslu reikninga og innheimtu, álagningastofni fasteignagjalda og álagningu þeirra
- Utanumhald íbúaskrár og spár um íbúa- og hagþróun í bænum
- Samræma og leita leiða til að hagræða í innkaupum fyrir stofnanir bæjarins
-
Framkvæmdarstjóri fjármála- og rekstrarsviðs er Þórey Ingveldur Guðmundsdóttir





.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)


