Félagsmiðstöðvar

Þjónusta við ungt fólk

Í Reykjanesbæ er ein starfandi félagsmiðstöð fyrir unglinga sem er þjónustumiðstöð grunnskólanema í 8. - 10. bekk. Hún heitir Fjörheimar og var stofnuð árið 1983. Fjörheimar voru fyrst til húsa að Hjallavegi í Njarðvíkurhverfi. Árið 2008 fluttu Fjörheimar upp á Ásbrú en er nú að flytja að Hafnargötu 88 í Reykjanesbæ (sama húsnæði og 88 Húsið, beint á móti Pósthúsinu).

Innra starf félagsmiðstöðvarinnar byggir fyrst og fremst á unglingalýðræði og frumkvæði unglinganna sjálfra. Þar fer fram leitarstarf sem felst m.a. í því að fylgjast með þeim ungmennum sem virðast ekki finna sig í hefðbundnu tómstunda- eða íþróttastarfi innan íþróttafélaga eða skóla. 

Fyrir utan hið hefðbunda starf Fjörheima eru ýmsir sem nota sér aðstöðu Fjörheima s.s. Nes (starf fyrir fatlaða), Hjálpræðisherinn, bekkjarkvöld fyrir grunnskólanna og margt fleira.

Hafþór Birgisson tómstundafulltrúi situr í Samtakahópnum sem er forvarnarhópur á vegum Reykjanesbæjar, fjölmenningarhópnum, öryggisnefnd Ljósanætur og að auki tekur þátt í starfssemi Samsuð sem eru samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum.

Hafþór tómstundafulltrúi hefur jafnframt séð um fræðslu um ábyrga og jákvæða internetnotkun og fræðslu um skaðsemi reykinga í grunn- og framhaldskólunum.

Fjörheimar hafa verið leigðir út fyrir afmælisveislur. Verð fyrir leigu hefur verið 7.000. Nánari upplýsingar á fjorheimar@fjorheimar.is

Allar nánari upplýsingar veitir Hafþór Birgisson á tölvupóstfangið hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is

88 Húsið er menningarmiðstöð ungs fólks 16 - 25 ára. 88 Húsið var stofnað 2004 og er staðsett að Hafnargötu 88. M.a. verkefna sem eru starfrækt eru forvarnardagur ungra ökumanna í samstarfi við BS, FS, FFR, tryggingarfélögin, USK og lögregluna. Spunaspilaklúbburinn Ýmir er með starfssemi tvisvar í viku í húsinu sem og hinir ýmsu lanklúbbar. Dagskrárliðir eru skipulagði í samstarfi við 88 Húsráð sem er skipað ungu fólki. Viðburðir eru auglýstir á heimasíðu 88 Hússins sem og á Fésbókarsíðu 88 Hússins. Vinnuskóli Reykjanesbæjar hefur aðsetur í 88 Húsinu á sumrin.

Allar nánari uppl um 88 Húsið veitir Hafþór Birgisson á tölvupóstfangið hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is

Fréttir