Allir grunnskólar í Reykjanesbæ eru einsetnir frá árinu 2000 í kjölfar umfangsmikilla breytinga í skólamálum sveitarfélagsins.
Í skólunum er boðið upp á heitar máltíðir í hádeginu og frístundavistun frá því að skóla lýkur til kl. 16:00.
Nemendur sækja grunnskóla samkvæmt skólahverfum. Ekki þarf að sækja sérstaklega um grunnskólavist en óski foreldrar eftir öðru skólahverfi þarf að sækja um það á íbúavefnum mittreykjanes.is.
Nemendur með lögheimili í tilteknu skólahverfi hafa þó forgang á skólavist ef skóli þarf að takmarka nemendafjölda. Tekið er á móti nýskráningum í viðkomandi skóla eða hjá þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar sími 421 6700.
Allar upplýsingar vegna skráningu í grunnskóla eru á mentor.is og eru foreldrar hvattir til þess að nota lykilorð sín þar. Lykilorð leikskóla gilda áfram í grunnskóla. Foreldrar geta breytt upplýsingum sem þar eru skráðar um barnið sjálfir og jafnframt nálgast upplýsingar um skólastarf barnsins. Hafir þú glatað lykilorði þínu getur þú haft samband við skólaritara viðkomandi skóla.
Innritunarreglur grunnskóla (pdf)
Skólamatur
Skólastefna Reykjanesbæjar
Umsóknareyðublað um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
FRÍSTUND
Frístund býður dagskrá fyrir börn í 1. – 4. bekk frá því að skóla lýkur og til kl. 16.00. Frístund starfar í öllum grunnskólum Reykjanesbæjar. Hver skóli hefur til umráða miðstöð sem nefnd er Skjól en jafnframt er skólahúsnæði nýtt sem ekki er í notkun hverju sinni.Nánari upplýsingar um frístund er að finna á vefsíðum skólanna.
GRUNNSKÓLAR
Akurskóli
Tjarnabraut5,
230 Reykjanesbæ
Sími 420 4550 og 893 4550
Skólastjóri er Jónína Ágústsdóttir
Heiðarskóli
Heiðarhvammi 10, 230 Reykjanesbæ.
Sími 420 4500, símbréf 420 4509.
Skólastjóri er Gunnar Jónsson
Holtaskóli
Sunnubraut 32, 230 Reykjanesbæ.
Sími 420 3500, 421 5134
símbréf 421 5134.
Skólastjóri er Jóhann Geirdal
Njarðvíkurskóli
v/Brekkustíg 260 Reykjanesbæ.
Sími 420 3000
símbréf 420 3001
Skólastjóri er Ásgerður Þorgeirsdóttir
Háaleitisskóli
Grunnskólaútibú Ásbrú
Lindarbraut 624
Sími 420 3050
Útibú frá Njarðvíkurskóli
Aðstoðarskólastjóri er Anna S. Guðmundsdóttir
Myllubakkaskóli
Sólvallagötu 6 230 Reykjanesbæ.
Sími 420 1450, 421 5796
símbréf 420 1459.
Skólastjóri er Steinar Jóhannsson

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







