Umhverfi og skipulag

Umhverfis- og skipulagsráð. Ráðið fer með skipulagsmál, umferðarmál, umhverfis- og náttúruverndarmál auk málefna skrúðgarðs- og fegrunarnefndar. Formaður er Magnea Guðmundsdóttir.

Umhverfis- og skipulagssvið (USK) fer með skipulags-, umhverfis- og byggingarmál samkvæmt Skipulagslögum nr. 123 frá 2010 og lögum um Mannvirki nr. 160 frá 2010, þar sem það á við.

Framkvæmdastjóri USK er Guðlaugur H. Sigurjónsson. Hann stýrir öllum framkvæmdum á vegum bæjarins og hefur eftirlit með viðhaldi fasteigna, rekstri gatnakerfis og er yfirmaður Þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar.

Skipulagsfulltrúi er Guðlaugur H. Sigurjónsson.

Byggingarfulltrúi er Einar Júlíusson. Byggingafulltrúi hefur eftirlit með að mannvirki séu byggð samkvæmt viðkomandi samþykktum og ákvæðum byggingarreglugerðar nr 112 frá 2012, ásamt yfirumsjón með lóðaskráningu og m.a. skráningu upplýsinga um mannvirki og lóðir í Þjóðskrá. Aðstoðarmaður og staðgengill byggingafulltrúa er Sigmundur Eyþórsson tæknifræðingur.

Aðrir starfsmenn eru: Sveinn Númi Vilhjálmsson verkfræðingur,Björn Samúelsson eftirlitsmaður fasteigna, Björgvin Jónsson eftirlitsmaður fasteigna, Susan Osborne, og Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir.

Fréttir úr ýmsum áttum