Á frístundir.is færðu góða yfirsýn yfir allt það fjölbreytta frístundastarf sem í boði er í Reykjanesbæ. Vefurinn gerir þér kleift að sía framboð eftir aldri og staðsetningu, þannig að auðvelt er að finna það sem hentar hverjum og einum.
Á vefnum má einnig finna hugmyndir að skemmtilegum stöðum fyrir útivist og samveru. Hvort sem áhuginn liggur í íþróttum, listum, útivist eða annarri tómstundastarfsemi ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Skoðaðu framboðið á frístundir.is og veldu „Reykjanesbær“ til að sjá hvað er í boði hér í bænum. Við hvetjum íbúa til að kynna sér úrvalið og skrá sig tímanlega.