
Í Reykjanesbæ er starfrækt eitt virkasta félagsmiðstöðvastarf á Íslandi og er opnanir alla virka daga fyrir alla grunnskólanemendur í Reykjanesbæ á aldrinum 6-16 ára
Fjórar félagsmiðstöðvar starfa undir sameiginlegu nafni Fjörheima:
Fjörheimar Hafnó í 88 húsinu við Hafnargötu 88
Fjörheimar Akur í húsnæði Akurskóla
Fjörheimar Háaleiti í húsnæði Háaleitisskóla
Fjörheimar Stapa í húsnæði Stapaskóla
Opnanir eru aldursskiptar. Fyrir nemendur á miðstigi er boðið upp á dagopnanir en fyrir unglingastig eru í boði opin hús, dagopnanir og klúbbastarf. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Fjörheimar.
Starfið í Fjörheimum
Starf Fjörheima byggir fyrst og fremst á unglingalýðræði þar sem áhersla er lögð á frumkvæði unglinganna sjálfra. Unglingaráð Fjörheima er valið í byrjun hvers skólaárs og starfar allan veturinn.
Fjörheimar eru í góðu samstarfi við alla grunnskóla Reykjanesbæjar og eru stöðugt að þróa sitt starf í samræmi við þarfir og áhugasvið barna og ungmenna í bænum.

