Í Reykjanesbæ starfa öflugir menningarhópar sem auðga mannlíf bæjarins með fjölbreyttri starfsemi. Félögin standa fyrir viðburðum, sýningum, námskeiðum og annarri menningarstarfsemi sem skapar tækifæri til þátttöku, upplifunar og samveru.
Sum félaganna starfa á grundvelli rekstrar- eða þjónustusamninga við Reykjanesbæ. Samstarfið stuðlar að öflugri og aðgengilegri menningarstarfsemi sem stendur íbúum og gestum til boða allt árið um kring.