Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Menningarstyrkir

Reykjanesbær veitir árlega styrki til menningarmála í gegnum Menningarsjóð Reykjanesbæjar. Markmið sjóðsins er að styðja við öflugt og fjölbreytt menningarlíf í bænum og skapa tækifæri til nýsköpunar, þátttöku og listsköpunar. 

Hægt er að sækja um: 

  • styrki til einstakra menningarverkefna 
  • þjónustusamninga fyrir starfandi menningarhópa í Reykjanesbæ 

Auglýst er eftir umsóknum í upphafi hvers árs og er umsóknarfrestur jafnan í febrúar. Umsóknir eru sendar inn rafrænt á mittreykjanes.is.

Aðrir styrkjamöguleikar

Auk Menningarsjóðs Reykjanesbæjar standa menningarverkefnum til boða ýmsir aðrir styrkjamöguleikar. Þar á meðal er Uppbyggingarsjóður Sóknaráætlunar Suðurnesja sem veitir árlega styrki til menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefna á Suðurnesjum.