Beint í efni

728. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 3. nóvember 2026 kl. 17.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Bjarni Halldór Heiðuson vara-bæjarfulltrúi, Díana Hilmarsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Guðbergur Ingólfur Reynisson aðal-bæjarfulltrúi, Gunnlaugur Kárason aðal-bæjarfulltrúi, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Hjörtur Magnús Guðbjartsson aðal-bæjarfulltrúi, Kristján Pétur Kristjánsson aðal-bæjarfulltrúi, Logi Þór Ágústsson vara-bæjarfulltrúi, Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar, Róbert Jóhann Guðmundsson aðal-bæjarfulltrúi, Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri

Að auki sat fundinn Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Alexander Ragnarsson boðaði forföll, Logi Þór Ágústsson sat fyrir hann.

Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll, Bjarni Halldór Heiðuson sat fyrir hana.

Dagskrá fundar

1. Fundargerðir bæjarráðs 22. og 29. október 2026

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Gunnlaugur Kárason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Bjarni Halldór Heiðuson og Kristján Pétur Kristjánsson.

Til máls tók Hjörtur M. Guðbjartsson (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 2 frá fundargerð bæjarráðs 22. október 2026 - Viðhald og framkvæmdir – staða mála (2025080340)

„Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar geta ekki samþykkt nýja beiðni um viðbótarviðauka vegna fjárfestinga og viðhalds Eignasjóðs, eins og lagt er upp með.

Ástæður fyrir því eru að það eru einungis 20 dagar síðan að síðasta beiðni um viðauka vegna umframkeyrslu fjárfestinga kom fram þar sem samþykktur var 170 milljóna kr. viðauki til að halda áfram fjárfestingum út árið. Það skýtur því skökku við og veldur okkur miklum áhyggjum, að hér sé verið að biðja um viðauka upp á 45,7 milljónir til viðbótar til fjárfestinga, aðeins tæpum þremur vikum síðar. 

Upphafleg fjárfestingaáætlun ársins var 1.850 milljónir en er orðin 2.328 milljónir, umframkeyrsla um 478 milljónir eða 25,8% á aðeins fjórum mánuðum.

Skiptist það þannig:

•Framúrkeyrsla án viðauka alls 271,8 milljón, sem var í raun 347 milljónir en 75,1 milljónir hafa verið nýttar á móti frá fjárfestingarheimildum annarra verkefna ársins

•Viðauki fyrir 170 milljónum í fjárfestingar

•Auka viðauki fyrir 35,7 milljónir í fjárfestingar.

Þess utan hefur minnihluti bæjarstjórnar ekki fengið gögn er varða fjárhagsáætlun næsta árs og getum við því ekki tekið slíka afdrifaríka ákvörðun um fjármál sveitarfélagsins á þessum tíma án þess að vita betur raunstöðu okkar á næsta ári og stöðu fjárfestinga.

Undirrituð styðja nú sem áður uppbyggingu Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Það er þó óásættanlegt að bæjarráð sé aftur sett í þá stöðu að samþykkja viðbótarfjárheimildir fjárfestinga í sama mánuði.

Við ítrekum áhyggjur okkar af stöðu fjárfestinga.

Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar geta þó samþykkt viðauka við fjárfestingu fyrir nýjum ljósum í Reykjaneshöll að upphæð 5,2 milljónir þar sem um er að ræða öryggisatriði í húsinu. Eðlilegt er að bregðast við slíku ástandi.

Hvað varðar viðhald sérstaklega þá munum við samþykkja viðauka upp á þrjár milljónir í þegar skilgreint verkefni Íþróttaakademíunnar og förum fram á að þegar viðhald kemur til, þá sé bæjarráð upplýst um það sérstaklega og brugðist við. Það er eðlilegt að taka frá fjármagn í viðhald mannvirkja í stórum sveitarfélögum, enda gerðum við það með 436,4 milljónum fyrir árið, sem var 33% hækkun frá fyrra ári.“

Hjörtur M. Guðbjartsson og Bjarni Halldór Heiðuson Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn.

Til máls tóku Kristján Pétur Kristjánsson, Gunnlaugur Kárason og Hjörtur M. Guðbjartsson.

Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

Fundargerð 1585. fundar bæjarráðs 22. október 2026

Fundargerð 1586. fundar bæjarráðs 29. október 2026

2. Fundargerð skipulagsráðs 23. október 2026

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 23. október til sérstakrar samþykktar.

Annað mál fundargerðarinnar Brimdalur 5 - stækkun lóðar (2026090108) samþykkt 11-0 án umræðu.

Þriðja mál fundargerðarinnar Suðurbrautarreitur - uppfærð gögn (2023030660) samþykkt 11-0 án umræðu.

Fjórða mál fundargerðarinnar AT12 Fitjar - óveruleg breyting á aðalskipulagi (2026030326) samþykkt 11-0 án umræðu.

Fimmta mál fundargerðarinnar M2 miðbær (2019060056) samþykkt 11-0 án umræðu.

Áttunda mál fundargerðarinnar Háholt 21 - lóðarstækkun (2026100165) samþykkt 11-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust.

Til máls tók Róbert Jóhann Guðmundsson og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 10 frá fundargerð skipulagsráðs frá 23. október 2026 - Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar - umsögn (2026010494)

„Minnihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar leggur áherslu á mikilvægi Keflavíkurflugvallar fyrir atvinnulíf og samfélag á Suðurnesjum, en jafnframt að hugað sé að áhrifum flugumferðar á hljóðvist og lífsgæði íbúa.

Minnihlutinn leggur til að Isavia, Reykjanesbær og Landhelgisgæslan taki upp formlegt samstarf um mótun skýrra verkferla varðandi hljóðvist, miðlun upplýsinga, vöktun, meðhöndlun ábendinga íbúa og viðbrögð við hávaða. Jafnframt verði skoðað hvort unnt sé að draga úr ónæði með breytingum á flugferlum og framkvæmd flugumferðar, að teknu tilliti til flugöryggis.

Markmiðið er að stuðla að góðu samstarfi, skýrri ábyrgð og því að uppbygging Keflavíkurflugvallar og lífsgæði íbúa Reykjanesbæjar fari sem best saman.“

Díana Hilmarsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Róbert Jóhann Guðmundsson Framsókn, Bjarni Halldór Heiðuson og Hjörtur M. Guðbjartsson Samfylkingu.

Tillaga lögð fram um að öll bæjarstjórn taki undir bókunina. Tillagan felld með sex atkvæðum meirihluta.

Til máls tóku Guðbergur Reynisson, Vilhjálmur Árnason og Róbert Jóhann Guðmundsson.

Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.

Fundargerð 399. fundar skipulagsráðs 23. október 2026

3. Fundargerð íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs 22. október 2026

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Díana Hilmarsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Hjörtur M. Guðbjartsson, Kristján Pétur Kristjánsson og Guðbergur Reynisson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fundargerð 209. fundar ÍTM ráðs 22. október 2026

4. Fundargerð leikskólaráðs 27. október 2026

Sameiginleg bókun bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar:

Mál 6 frá fundargerð leikskólaráðs frá 27. október 2026 - Uppbygging og úrbætur í leikskólum - stöðumat og forgangsröðun (2026090393)

„Bæjarstjórn þakkar spretthópi um leikskólamál fyrir metnaðarfulla vinnu og góðar tillögur sem miða að því að bæta leikskólaþjónustu í Reykjanesbæ.

Bæjarstjórn fagnar þeim víðtæka samhljómi sem ríkti í leikskólaráði um að taka undir helstu tillögur spretthópsins og telur mikilvægt að fylgja þeirri vinnu eftir. Bæjarstjórn leggur áherslu á að einnig verði tekið mið af íbúasamsetningu og atvinnuumhverfi foreldra og að hægt sé að mæla hvaða áhrif fyrirkomulagið hafi á farsæld barna, þátttöku eldri systkina í íþrótta- og tómstundastarfi eða á daglegt líf fjölskyldna.“

Guðbergur Reynisson, Kristján Pétur Kristjánsson, Logi Þór Ágústsson, Margrét Þórarinsdóttir og Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki. Gunnlaugur Kárason Miðflokki. Bjarni Halldór Heiðuson og Hjörtur M. Guðbjartsson Samfylkingu. Díana Hilmarsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Róbert Jóhann Guðmundsson Framsókn.

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Logi Þór Ágústsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Bjarni Halldór Heiðuson (S) lagði fram eftirfarandi fyrirspurn vegna bókunar leikskólaráðs:

Mál 6 - Uppbygging og úrbætur í leikskólum - stöðumat og forgangsröðun (2026090393)

„Markmiðið er að létta á útgjöldum fjölskyldna og tryggja að fjárhagur standi ekki í vegi fyrir því að börn geti sótt leikskóla.“

Með þetta markmið í huga vil ég leggja fram tvær spurningar:

Er gert ráð fyrir að áður en ný gjaldskrá verður samþykkt liggi fyrir greining á áhrifum hennar á ólíkar fjölskyldur og tekjulág heimili sem þurfa lengri dvöl?

Og verður áætlun um árangursmat lögð fram áður en tilraunin hefst, þannig að við höfum skýr viðmið til að meta niðurstöðuna?

Síðar í sömu bókun segir, með leyfi forseta:

„Í Reykjanesbæ er töluverður hópur barna sem ekki nýtir leikskólaþjónustu og mikilvægt er að greiða leið þeirra inn í leikskólastarf.“

Þetta er mikilvægt markmið. Til að meta hvort breytingarnar nái því væri gagnlegt að vita hversu mörg þessi börn eru, á hvaða aldri og hvaða hindranir standa helst í vegi fyrir þátttöku þeirra. Eru það gjöldin eða aðrar aðstæður?

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fundargerð 4. fundar leikskólaráðs 27. október 2026

5. Sameining dagdvala - fyrirspurn

Vilhjálmur Árnason lagði fram svar við fyrirspurn Guðnýjar Guðmundsdóttur Samfylkingu sem lögð var fram á bæjarstjórnarfundi 20. október 2026.

Þegar starfsemi dagdvalarinnar í Selinu hefur verið flutt úr húsnæðinu, hvað hyggst meirihlutinn gera við húsnæðið?

Svar: Málið er i skoðun.

6. Fjárhagsáætlun 2027-2030 – fyrirspurn

Vilhjálmur Árnason lagði fram svör við fyrirspurn Guðnýjar Guðmundsdóttur Samfylkingu sem lögð var fram á bæjarstjórnarfundi 20. október 2026.

Er umbótateymið ykkar í meirihlutanum að fara að taka lokaákvarðanir um einstök verkefni og jafnvel starfsfólk og vinnustaði án aðkomu bæjarráðs Reykjanesbæjar?

Hefur þetta teymi þau völd í boði framkvæmdastjóra sem fer með daglegan rekstur, að hér er ráðið starfsfólk Sjálfstæðisflokksins að taka pólitískar ákvarðanir um þetta sveitarfélag og verkefni þess?

Svar: Svarið er nei. Umbóta- og hagræðingarteymið skoðar rekstur bæjarins og kemur með tillögur um hvað megi gera betur og hvar megi hagræða. Það tekur ekki lokaákvarðanir um verkefni, starfsfólk eða vinnustaði. Tillögurnar fara til þeirra sem hafa umboð til að taka ákvarðanir um þær. Eftir tólf ár í meirihluta ætti bæjarfulltrúinn Guðný Birna Guðmundsdóttir oddviti Samfylkingarinnar að þekkja muninn á því að koma með tillögur og að taka ákvarðanir. Teymið hefur ekki tekið yfir hlutverk eða ákvörðunarvald bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Í fyrirspurn bæjarfulltrúans er því haldið fram að „starfsfólk Sjálfstæðisflokksins“ hafi verið ráðið til starfa við umbóta- og hagræðingarteymi Reykjanesbæjar. Við óskum eftir að hún útskýri við hverja hún á með orðunum „starfsfólk Sjálfstæðisflokksins“ og á hverju sú lýsing byggist.

Það er bæði sjálfsagt og eðlilegt að kjörnir fulltrúar óski upplýsinga um hlutverk, umboð og starfsemi umbótateymisins. Slík umræða þarf hins vegar að byggjast á staðreyndum en ekki órökstuddum dylgjum um einstaklinga sem sinna verkefnum fyrir sveitarfélagið. Pólitískar aðdróttanir koma ekki í stað málefnalegrar gagnrýni og bæjarfulltrúar verða að geta staðið fyrir máli sínu þegar þeir bera fram fullyrðingar af þessu tagi.

Meirihlutinn harmar hvernig bæjarfulltrúinn talar um starfsmenn bæjarins og hvetur bæjarstjórn alla til að koma fram við starfsfólk okkar af virðingu, eins og nánast allir bæjarfulltrúar gera alla jafna.

Bókun meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar:

„Skjaladeild Reykjanesbæjar hefur tekið saman upplýsingar um fjölda fyrirspurna og spurninga minnihlutans í bæjarstjórn, bæjarráði og fagráðum á tímabilinu júní til október 2026, samanborið við sama tímabil árið 2022. Vægast sagt benda niðurstöðurnar til þess að nokkurs konar fyrirspurnarfaraldur sé á ferðinni hjá ákveðnum aðilum, sem minnir helst á vinnubrögð Pírata á Alþingi fyrir fáeinum árum.

Á fyrstu fimm mánuðum yfirstandandi kjörtímabils hafa verið lagðar fram 19 fyrirspurnir með samtals 76 spurningum, samanborið við tvær fyrirspurnir með níu spurningum á sama tímabili árið 2022. Fyrirspurnum hefur því fjölgað um 850% og einstökum spurningum um rúmlega 744%. Hér er einfaldlega um sláandi tölfræði að ræða og getur aðeins verið útskýrð af pólitískum hvötum. 

Þessi mikla fjölgun fyrirspurna hefur í för með sér verulegt viðbótarálag á starfsmenn sveitarfélagsins. Að baki skriflegum svörum liggur oft umfangsmikil vinna við upplýsingaöflun, samantektir, útreikninga og yfirferð gagna. Sá tími er ekki ótakmörkuð auðlind og fer óhjákvæmilega frá öðrum verkefnum sem starfsfólki sveitarfélagsins er ætlað að sinna í þágu bæjarbúa.

Ekki liggur fyrir heildstætt yfirlit yfir þann tíma og kostnað sem farið hefur í að svara fyrirspurnum kjörinna fulltrúa, en ætla má að kostnaðurinn sé umtalsverður. 

Meirihlutinn leggur því til að hér eftir verði haldið sérstaklega utan um þann vinnutíma sem fer í að svara formlegum fyrirspurnum kjörinna fulltrúa, sama hvort um er að ræða kjörna fulltrúa frá meirihluta eða minnihluta. Samhliða birtingu svara verði birt yfirlit yfir þann tíma sem fór í undirbúning þeirra og áætlaðan launakostnað sem af því hlýst, enda eiga skattgreiðendur rétt á að vita hvernig fjármunum þeirra er varið.

Meirihlutinn leggur ríka áherslu á gagnsæi í stjórnsýslu Reykjanesbæjar og virðir mikilvægan rétt minnihlutans til upplýsingaöflunar og lýðræðislegs aðhalds. Meirihlutinn telur eðlilegt að minnihlutinn velti því fyrir sér hvort allar þær fyrirspurnir sem lagðar eru fram kalli á umfangsmikla skriflega úrvinnslu eða hvort afla megi hluta upplýsinganna með einfaldari hætti.“

Guðbergur Reynisson, Kristján Pétur Kristjánsson, Logi Þór Ágústsson, Margrét Þórarinsdóttir og Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki og Gunnlaugur Kárason Miðflokki.

Til máls tóku Vilhjálmur Árnason, Hjörtur M. Guðbjartsson og Kristján Pétur Kristjánsson.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:57.