Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga.
Á meðal verkefna er kosning í ráð og nefndir á vegum bæjarstjórnar, yfirstjórn á fjárreiðum bæjarins og gerð samþykkta og ákvörðun gjalda auk þess að setja reglur um stjórn og meðferð bæjarmála.
Listar við kosningu 2010
B listi 868 atkvæði og 1 fulltrúar
D listi 3478 atkvæði og 7 fulltrúar
S listi 1762 atkvæði og 3 fulltrúar
V listi 306 atkvæði
Listar við kosningu 2006
A listi 2125 atkvæði og 4 fulltrúar
D listi 3606 atkvæði og 7 fulltrúar
F listi 130 atkvæði
R listi 37 atkvæði
V listi 331 atkvæði
Kosningar 2002
D listi 6 fulltrúar
B listi 1 fulltrúi
S listi 4 fulltrúar
Bæjarstjórn er skipuð 11 fulltrúum og eru þeir kosnir til fjögurra ára í senn. Í kosningum vorið 2010 voru kjörnir eftirtaldir fulltrúar:
Aðalfulltrúar: Árni Sigfússon (D), Gunnar Þórarinsson (D), Böðvar Jónsson (D), Magnea Guðmundsdóttir, (D) Einar Magnússon, (D) Baldur Guðmundsson, (D) Björk Þorsteinsdóttir (D), Friðjón Einarsson (S), Guðný Kristjánsdóttir (S), Eysteinn Eyjólfsson (S), Kristinn Þór Jakobsson (B)
Varafulltrúar: Ingigerður Sæmundsdóttir (D), Jóhann Snorri Sigurbergsson (D), Ragnheiður Sif Gunnarsdsóttir (D, Gunnar Ellert Geirsson (D), Rúnar V. Arnarson (D), Björg Hafsteinsdóttir (D), Björgvin Árnason (D), Jenný Þórkatla Magnúsdóttir (S), Hannes Friðriksson (S), Hjörtur M. Guðbjartsson (S), Silja Dögg Gunnarsdóttir (B)
Forseti bæjarstjórnar er Böðvar Jónsson (D).
Fundargerðir bæjarstjórnar eru einungis birtar á vefnum en með þeim fylgja fundargerðir ráða og nefnda á vegum bæjarins svo og ýmissa samtaka sem bærinn er aðili að. Smellið hér til þess að lesa fundargerðir.
Frekari upplýsingar um fundargerðir bæjarstjórnar og bæjarráðs veitir aðstoðarmaður bæjarstjóra.
Bæjarstjórn heldur fundi sína 1. og 3. þriðjudag í hverjum mánuði í Bíósal Duushúsa kl. 17:00. Fundirnir eru sendir út í beinni á upplýsingavef Reykjanesbæjar.
Bæjarstjórn kýs sér bæjarráð.
Bæjarráð
Bæjarráð er kosið af bæjarstjórn og skipað fimm fulltrúum. Bæjarráð fer með framkvæmda- og fjármálastjórn bæjarfélagsins ásamt bæjarstjóra.
Formaður bæjarráðs er Gunnar Þórarinsson (D).
Allar upplýsingar um meðferð mála hjá bæjarstjórn og bæjarráði gefa bæjarstjóri, bæjarritari og aðstoðarmaður bæjarstjóra.
Bæjarstjóri
Bæjarstjóri er Árni Sigfússon.
Hann hefur yfirumsjón með starfsemi bæjarfélagsins og sér um framkvæmd þeirra ákvarðana sem bæjarstjórn tekur.
Bæjarstjóri skipuleggur og undirbýr dagskrá funda bæjarráðs og bæjarstjórnar. Hann sér um daglega fjármálastjórn bæjarins ásamt fjármálastjóra.
Viðtalstími bæjarstjóra er miðvikudaga kl. 09:00 til 12:00.
Hægt er að panta símaviðtal við bæjarstjóra hjá aðstoðarmanni bæjarstjóra í síma 421 6700.
Smellið hér til þess að panta tíma hjá bæjarstjóra.
Bæjarritari
Bæjarritari er staðgengill bæjarstjóra. Hann er ábyrgur gagnvart bæjarráði og bæjarstjórn fyrir þeim málum sem undir hann heyra og honum eru falin.
Bæjarritari er fundarritari bæjarráðs og bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Sveitarstjórnarlög nr. 138/2011
Lög um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998
Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæjar (samþykkt 1. nóvember 2011)

.jpg?76x54;crop)

.jpg?76x54;crop)







