Innheimta

Fjármála- og rekstrarsvið annast innheimtu gjalda samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga og umsjón með gjaldendaskrá ásamt innheimtu á ýmsum reikningum og gjöldum svo sem leikskólagjöldum.  Sviðið annast greiðslur á öllum reikningum og kröfum á bæinn og fyrirtæki hans.

Afgreiðsla er að Tjarnargötu 12.  Gjaldkeri og innheimtustjóri er Guðfinna Eyjólfsdóttir.  Afgreiðslan er opin frá 9:15-15:30 alla virka daga Frekari upplýsingar eru veittar í síma 421 6700.

Reykjanesbær hefur gert samning við Motus um milli- og lögfræðiinnheimtu.  Fólk er hvatt til að semja um vanskil sem allra fyrst til að forðast óþarfa innheimtukostnað.

Fasteignagjöld hjá Reykjanesbæ

Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjanesbæ fyrir árið 2011 verða rafrænir nú í fyrsta skipti. Hægt er að nálgast álagningarseðlana á næstu dögum á mittreykjanes.is. Til að komast inn á mittreykjanes.is þarf lykilorð sem hægt er að nálgast hjá þjónustuveri bæjarins í síma 421-6700.

Jafnframt verða fasteignagjöld hjá bænum innheimt líkt og á árinu 2010 í heimabönkum. Reykjanesbær bendir fasteignaeigendum á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum eða boðgreiðslur af greiðslukortum.

Fjármálaskrifstofa Reykjanesbæjar annast álagningu og innheimtu á fasteignagjöldum. Við álagningu fasteignaskatta nú í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2009. Þegar álagning vegna tekna ársins 2010 liggur fyrir í lok sumars verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega. Fjármálaskrifstofa bæjarins framkvæmir breytingar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega og því þarf ekki að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskattsins.

Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi eigandi eigi lögheimili í Reykjanesbæ, er þinglýstur eigandi íbúðarhúsnæðisins og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna eignarinnar. Einungis er veittur afsláttur vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Reglur um afsláttinn eru birtar sérstaklega á vef bæjarins.

Gjalddagar fasteignagjalda yfir kr. 25.000 eru 10, 25. janúar til og með 25. október, og eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

RAFRÆNIR GREIÐSLUSEÐLAR


Fasteignagjöld

Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda verða ekki lengur sendir út til greiðenda nema þeir óski eftir því sérstaklega. Greiðsluseðill vegna fasteignagjalda verður eingöngu birtur í heimabanka.

Hægt er að skoða yfirlit yfir allar greiðslur til Reykjanesbæjar á íbúavefnum mittreykjanes.is.
Með þessum aðgerðum er Reykjanesbær að auka hagkvæmni í rekstri og gera ferlið um leið umhverfisvænna.

Boðgreiðslur

Íbúum stendur til boða að greiða ýmsar reglubundnar greiðslur til Reykjanesbæjar með öruggum og auðveldum hætti með mánaðarlegri færslu af kreditkorti.

Þeir sem nýta sér þennan kost fá ekki lengur reikninga fyrir föstum greiðslum bæjarins en færsla á kreditkortayfirliti gildir í stað þess sem staðfesting á greiðslu.

Með þessu sparast mikil fyrirhöfn, bæði fyrir korthafa og Reykjanesbæ.

Þær greiðslur sem hægt verður að inna af hendi með boðgreiðslum eru:

  • fasteignagjöld,
  • leikskólagjöld
  • frístundaskóli
  • tónlistarskóli
  • heimaþjónusta.

Þeir íbúar sem hafa áhuga á því að notfæra sér þessa þjónustu geta haft samband við gjaldkera í síma 421 6700 eða sent tölvupóst á innheimta@reykjanesbaer.is. Allir kortafar fá punkta af boðgreiðsluviðskiptum.

Fréttir