
Duus safnahús eru menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar, staðsett við Duusgötu í hjarta gamla bæjarins í Keflavík. Húsin eiga sér langa sögu og mynda fallega umgjörð um fjölbreytta menningarstarfsemi.
Í Duus safnahúsum eru sýningarsalir Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar auk Gestastofu Reykjaness UNESCO jarðvangs. Þar fara einnig reglulega fram viðburðir og önnur menningardagskrá.