Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Hljómahöll

Hljómahöll er lifandi tónlistar-, menningar- og ráðstefnuhús í Reykjanesbæ. Frá opnun árið 2014 hefur Hljómahöll verið mikilvægur vettvangur menningar og viðburða á Suðurnesjum, þar sem fólk kemur saman til að njóta tónlistar, upplifa skemmtilega viðburði og skapa góðar minningar.

Í Hljómahöll er að finna tónleika- og viðburðasalina Stapa og Berg. Stapi á sér langa og merka sögu sem einn þekktasti samkomustaður landsins, en Berg býður upp á notalegra og persónulegra umhverfi fyrir minni tónleika og viðburði. Í húsinu er einnig Rokksafn Íslands, þar sem saga íslenskrar popp- og rokktónlistar lifnar við, ásamt Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Bókasafni Reykjanesbæjar.

Starfsemin er fjölbreytt og spannar allt frá stórum tónleikum, uppistöndum og menningarviðburðum yfir í ráðstefnur, fundi, árshátíðir og veislur. Hljómahöll býður upp á fyrsta flokks aðstöðu fyrir viðburði af öllum stærðum og gerðum, þar sem fagleg þjónusta og góð upplifun gesta eru í fyrirrúmi.

Hljómahöll - Hjarta menningar í Reykjanesbæ.

Nánari upplýsingar um viðburði, salaleigu og starfsemi Hljómahallar má finna á vef Hljómahallar.

Staðsetning: Hjallavegur 2, 260 Reykjanesbær Sími: 420 1030 Netfang: info@hljomaholl.is