Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Listasafn Reykjanesbæjar

Listasafn Reykjanesbæjar er staðsett í Duus Safnahúsum við smábátahöfnina í Keflavík. Safnið hóf formlega starfsemi árið 2003 og hefur það markmið að efla myndlistarlíf í bænum og auka áhuga og þekkingu á sjónlistum.

Listasafn Reykjanesbæjar safnar, varðveitir og miðlar myndlist með áherslu á samtímalist og listamenn sem eiga rætur eða sögu á Suðurnesjum. Safnið stendur fyrir fjölbreyttu sýningarhaldi og býður gestum að kynnast samtímalist í ólíkum myndum. 

Sýningarsalir Listasafnsins eru í Duus safnahúsum þar sem nýjar sýningar eru opnaðar reglulega yfir árið.