Foreldranámskeið og fræðsla
Skólaþjónustan býður upp á fjölbreytt fræðslu- og uppeldisnámskeið fyrir foreldra. Markmiðið er að styðja foreldra í uppeldishlutverkinu og hjálpa börnum að takast á við áskoranir sem geta komið upp á mismunandi aldursskeiðum.
Námskeiðin eru sniðin að aldri og þörfum barna og byggja á vel rannsökuðum aðferðum. Allir leiðbeinendur hafa viðurkennda fagmenntun og tilskilin starfsréttindi.
Hér fyrir neðan finnur þú nánari upplýsingar um námskeiðin.
Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á líf barna og styðja þá í að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með ADHD. Foreldrar skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að komi upp. Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma.
Námskeiðið hentar jafnt foreldrum barna sem hafa staðfesta ADHD greiningu sem og börnum þar sem grunur er um hamlandi einkenni ADHD. Efni námskeiðsins hentar best fyrir foreldra barna í 1. til 7. bekk, sem hafa ekki margar eða flóknar fylgiraskanir.
Skráning og námskeiðsgjald
Næstu námskeið verða í október 2025 og febrúar/mars 2026.
Námskeiðið er niðurgreitt að stærstum hluta af skólaþjónustu. Námskeiðskostnaður er 15.000 krónur og verður sendur reikningur í heimabanka við upphaf námskeiðs.