1228. fundur

18.07.2019 08:00

1228. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 18. júlí 2019 kl. 08:00

Viðstaddir: Friðjón Einarsson formaður, Guðbrandur Einarsson, Gunnar Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Saga Keflavíkur 1949-1994 - kynning (2019050831)

Kristinn Jakobsson, formaður ritstjórnar og Eiríkur Páll Jörundsson, forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar mættu á fundinn og fóru yfir hugmyndir um ritun sögunnar og áætlun um kostnað.

Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.

Fylgigögn:

Saga Keflavíkur 1949-1994 - kynning

2. Niðurrif á togaranum Orlik (2019070172)

Halldór K. Hermannsson, hafnarstjóri, Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs og Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs mættu á fundinn. Lagt fram bréf skipulagsfulltrúa. Bæjarráð samþykkir umsögn skipulagsfulltrúa 5-0.

Jafnframt samþykkir bæjarráð fyrir sitt leyti rof á sjóvarnargarði eins og lýst er í matsskyldufyrirspurn enda verði sjóvarnargarðurinn settur í sama horf að framkvæmd lokinni.

3. Fjárhagsáætlun 2020 - 2023 (2019070112)

Bæjarráð samþykkir að halda sig við markmið gildandi aðlögunaráætlunar.

4. Suðurnesjalína 2 - Umsögn um frummatsskýrslu (2019050744)

Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.

5. Framkvæmdastjórn samkvæmt nýju stjórnskipulagi (2019070174)

Bæjarráð samþykkir skipan framkvæmdastjórnar frá og með 1. september 2019 eins og lagt er til í bréfi bæjarstjóra 16. júlí 2019.

Fylgigögn:

Framkvæmdastjórn - tillaga

6. Þakkarbréf frá forseta Íslands (2019070133)

Lagt fram.

Fylgigögn:

Þakkarbréf frá forseta Íslands

7. Aðalfundur Tjarnargötu 12 ehf. 25. júlí 2019 - fundarboð (2019070164)

Fundarboð lagt fram. Formaður bæjarráðs fer með atkvæði Reykjanesbæjar á aðalfundinum.

Fylgigögn:

Fundarboð aðalfundar Tjarnargötu 12 ehf. 25. júlí 2019

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:45.