514. fundur

07.02.2017 00:00

514. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 7. febrúar 2017 kl. 17:00.

Viðstaddir: Baldur Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Friðjón Einarsson, Guðbrandur Einarsson, Eysteinn Eyjólfsson varabæjarfulltrúi, Gunnar Þórarinsson, Kristinn Þór Jakobsson, Magnea Guðmundsdóttir, Kristján Jóhannsson varabæjarfulltrúi, Davíð Páll Viðarsson  varabæjarfulltrúi, Ingigerður Sæmundsdóttir varabæjarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og  Ásbjörn Jónsson ritari. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson.

1. Fundargerðir bæjarráðs 19. og 26. janúar og 2. febrúar 2017 (2017010007)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tók Guðbrandur Einarsson og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarstjórnar:
„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir furðu sinni á því að ekki hafi verið kannaðir kostir þess að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur.
Nú er hafin vinna við að skoða kosti þess að flytja innanlandsflugið í Hvassahraun sem er aðeins í 20 mín fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Það er ljóst að verði af slíkri framkvæmd mun hún kosta tugi milljarða. Það getur varla talist réttlætanlegt þegar hægt væri að koma upp aðstöðu fyrir innanlandsflug fyrir brot af þessum kostnaði.
Svokölluð Rögnunefnd sem fékk það verkefni að skoða aðra kosti fyrir innanlandsflug en í Reykjavík, útilokaði einhverra hluta vegna Keflavíkurflugvöll sem valkost. Ástæður þess liggja ekki fyrir og slíkt getur varla talist eðlilegt þegar um svo mikla fjármuni er að ræða.
Kostir þess að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur eru hins vegar augljósir út frá fjárhagslegum sjónarmiðum. Á það hefur verið bent að dreifa þurfi ferðamönnum um landið vegna átroðnings á ákveðnum stöðum. Með tengingu innanlandsflugs og millilandaflugs verður slíkt mögulegt í auknum mæli.
Á Suðurnesjum er til staðar sjúkrahús sem gæti sinnt ákveðnum hluta sjúkraflugs með litlum breytingum og því ætti öryggisatriðum að vera fullnægt.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar því á hlutaðeigandi að skoðaðir verði kostir þess að innanlandsflugið fari til Keflavíkurflugvallar samhliða athugun á öðrum kostum.“
Guðbrandur Einarsson, Böðvar Jónsson, Magnea Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Kristján Jóhannsson, Friðjón Einarsson, Eysteinn Eyjólfsson, Kristinn Þór Jakobsson, Davíð Páll Viðarsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Baldur Þ. Guðmundsson.
Til máls tóku Böðvar Jónsson, Eysteinn Eyjólfsson, Kristinn Þór Jakobsson, Davíð Páll Viðarsson, Friðjón Einarsson, Magnea Guðmundsdóttir, Kristján Jóhannsson og Kjartan Már Kjartansson.
Fundargerð 1108. fundar samþykkt 11-0 nema 2. liður í fundargerðinni Thorsil ehf. var samþykktur með 8 atkvæðum. Böðvar Jónsson, Magnea Guðmundsdóttir og Kristinn Þór Jakobsson greiddu atkvæði gegn málinu.
Fundargerð 1109. fundar samþykkt 11-0. Magnea Guðmundsdóttir lýsir sig vanhæfa í 2. lið í fundargerðinni og tekur ekki í þátt í afgreiðslu hvað þann lið fundargerðarinnar varðar.
Fundargerð 1110. fundar samþykkt 11-0.

2. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 17. janúar 2017 (2017010209)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Kristinn Þór Jakobsson, Friðjón Einarsson, Gunnar Þórarinsson, Böðvar Jónsson og Kjartan Már Kjartansson.
Samþykkt að vísa þriðja lið fundargerðarinnar samningur við knattspyrnudeild Keflavíkur um rekstur og umhirðu valla og fjórða lið fundargerðarinnar samningur við knattspyrnudeild Njarðvíkur um rekstur og umhirðu valla til bæjarráðs 11-0. Fundargerðin samþykkt 11-0 að öðru leyti.

3. Fundargerð barnaverndarnefndar 23. janúar 2017 (2017010280)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Fundargerðin lögð fram án umræðu.

4. Fundargerð fræðsluráðs 27. janúar 2017 (2017010198)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Friðjón Einarsson Fundargerðin samþykkt 11-0.

5. Fundargerð velferðarráðs 30. janúar 2017 (2017020056)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Fundargerðin samþykktar 11-0 án umræðu.

6. Breyting á skipan fulltrúa í menningarráði (2016020215)
Eva Björk Sveinsdóttir hefur óskað eftir lausn frá nefndarstörfum í menningarráði. Tillaga kom um Guðbjörgu Ingimundardóttur sem aðalmann og formann og var hún sjálfkjörin.

Fleira ekki gert og fundi slitið.