639. fundur

18.10.2022 17:00

639. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn í Merkinesi, Hljómahöll 18. október 2022, kl. 17:00

Viðstaddir: Birgitta Rún Birgisdóttir, Bjarni Páll Tryggvason, Díana Hilmarsdóttir, Friðjón Einarsson, Guðbergur Reynisson, Helga Jóhanna Oddsdóttir, Margrét Þórarinsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson, Sigurrós Antonsdóttir, Sverrir Bergmann Magnússon og Valgerður Björk Pálsdóttir. Í forsæti var Guðbergur Reynisson.

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll, Sigurrós Antonsdóttir sat fyrir hana.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir boðaði forföll, Róbert Jóhann Guðmundsson sat fyrir hana.
Margrét A. Sanders boðaði forföll, Birgitta Rún Birgisdóttir sat fyrir hana.

1. Fundargerðir bæjarráðs 6. október og 12. október 2022 (2022010004)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Helga Jóhanna Oddsdóttir, Margrét Þórarinsdóttir, Bjarni Páll Tryggvason, Birgitta Rún Birgisdóttir, Valgerður Björk Pálsdóttir, Kjartan Már Kjartansson, Sigurrós Antonsdóttir og Guðbergur Reynisson.

Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1387. fundar bæjarráðs 6. október 2022
Fundargerð 1388. fundar bæjarráðs 12. október 2022

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 7. október 2022 (2022010013)

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi liði fundargerðarinnar frá 7. október til sérstakrar samþykktar:
Fjórði liður fundargerðarinnar Hafnargata 51-55 - niðurstaða grenndarkynningar (2022060350) samþykktur 11-0 án umræðu.
Fimmti liður fundargerðarinnar Tjarnargata 20 - svalir (2022080550) samþykktur 11-0 án umræðu.
Sjötti liður fundargerðarinnar Lyngholt 13 - fjölgun íbúða (2022100130) samþykktur 11-0 án umræðu.
Áttundi liður fundargerðarinnar Hafnarbraut 12c - fyrirspurn (2022090525) samþykktur 11-0 án umræðu.
Ellefti liður fundargerðarinnar Þjóðbraut 838 – stækkun (2022100146) samþykktur 11-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Valgerður Björk Pálsdóttir.

Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 300. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 7. október 2022

3. Fundargerð framtíðarnefndar 12. október 2022 (2022010007)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Valgerður Björk Pálsdóttir.

Fundargerðið samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 34. fundar framtíðarnefndar 12. október 2022

4. Fundargerð fræðsluráðs 14. október 2022 (2022010008)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Sverrir Bergmann Magnússon, Valgerður Björk Pálsdóttir, Bjarni Páll Tryggvason, Helga Jóhanna Oddsdóttir, Friðjón Einarsson og Guðbergur Reynisson.

Fundargerðið samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 355. fundar fræðsluráðs 14. október 2022

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:10.